Frjáls verslun - 01.04.2003, Qupperneq 42
NÆRMYND ÁRNIVILHJÁLMSSON
Arni Vilhjálmsson stýrir einu stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins og hefur alið upp stóran hluta af
atvinnustjórnendum landsmanna ígegnum kennslu
sína við Háskóla Islands. Hann er lærifaðir
flestallra viðskiptafræðinga yfir 25 ára aldri.
Árni Vilhjálmsson, starfandi stjórnar-
Efiir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson
Arni Vilhjálmsson, prófessor og starfandi stjórnarfor-
maður Granda, er höfðingi mikill, vandaður maður og
skarpgreindur, djúpur hugsuður og hugmyndasmiður
góður en orðvar maður og varkár í því sem hann lætur frá sér
fara á opinberum vettvangi. Arna er annt um persónu sína.
Honum er lýst sem kletti af þeim sem til hans þekkja, traust-
um vini og ráðagóðum. Hann er sagður „yndislegur maður“,
eins og einn viðmælenda Fijálsrar verslunar orðaði það,
„albesti maður sem ég þekki“, útsjónarsamur og heiðarlegur,
kennari ástsæll, metnaðarfullur, áhugasamur og alvörugefinn
en þó viðræðugóður, ræðinn og launfyndinn í samtölum. Árni
getur verið snöggur til svara ef svo ber undir. Hann vinnur
misjafnlega vel með fólki en á nokkuð gott með að laða aðra til
vinnu. Sumir segja að hann sé afar sérstakur maður og alls
ekki allra.
Uthugsar málin Ágúst Einarsson prófessor hefur starfað
lengi með Árna, bæði við Háskóla Islands og í stjórn Granda.
,Árni er afskaplega vandaður maður í alla staði og mikill hugs-
uður. Hann segir ekkert eða gerir fyrr en hann er búinn að
fullhugsa það mál. Það er mikill kostur að hann tekur ekki
afstöðu fyrr en hann er búinn að hugsa sig vel í gegnum málið.
Það eru vinnubrögð sem fáir hafa tileinkað sér en eru til fyrir-
myndar. Hann er afskaplega farsæll kennari og hefur útskrifað
flesta viðskiptafræðinga og endurskoðendur landsins. Þeir
bera honum vel söguna. Á sviði Ijármála og endurskoðunar er
hann „Nestor" Islands og verður seint og varla fullþakkað
hvað hann hefur gert mikið gagn fyrir menntun viðskiptafræð-
inga á undanförnum áratugum," segir hann.
Sem Stóri bróðir Árni er fæddur inn í sjávarútveginn og á
sterkar rætur í fortíðinni, bæði persónulega og viðskiptalega.
Sjávarútvegurinn er honum afskaplega mikils virði og má
segja að hann hafi sjávarútveginn í blóðinu. Faðir hans,
Vilhjálmur Árnason, var einn helsti togaraskipstjóri landsins á
sínum tíma og áttu þeir Vilhjálmur og Loftur Bjarnason, faðir
Kristjáns Loftssonar í Hval, saman Fiskveiðahlutafélagið
formaður Granda, við líkan af togar-
anum Ingólfi Arnarsyni sem var fyrsti
nýsköpunartogarinn sem kom til
landsins og fyrsti togari BÚR. Árni á
sterkar rætur í sjávarútvegi en faðir
hans var á sínum tíma þekktur afla-
skipstjóri á togurum.
Venus sem var og er stærsti hluthafinn í Hval hf. Mikill sam-
gangur var milli þessara tveggja manna og fjölskyldna þeirra
og hafa Árni og Kristján því þekkst ffá þvi þeir voru strákar.
Sterkt samband er milli þeirra enn þann dag í dag og segist
Kristján alltaf hafa litið á Árna sem stóra bróður. Ræða þeir oft
saman í síma „um allt milli himins og jarðar, lífið yrði ansi
einlitt annars. Maður verður að hafa fleira að tala um en bara
viðskiptin en ég sæki líka til hans ráð og velti upp ýmsum
flötum. Er það ekki tilgangurinn? Það eru þessir einrænu sem
tala bara við sjálfa sig,“ segir Krislján.
Enyinn sparistjórnandi Árni var maðurinn á bak við kaup
fjögurra félaga á um 78 prósenta hlut Reykjavíkurborgar í
Granda árið 1988. Árni hefur verið formaður stjórnar Granda
og leitt fyrirtækið æ síðan. Hann hefur bjargfasta trú á útvegi
sem aðalatvinnugrein þjóðarinnar og hefur mikinn metnað
fyrir hönd Granda. Árni heíúr fylgt staðfastlega þeirri stefnu að
kaupa ekki kvóta annars staðar á landinu og flytja í þéttbýlið
heldur fjárfesta í útgerðarfyrirtækjum úti á landi. Þannig helst
kvótinn í heimabyggð. Hann hefur notið virðingar innan sjávar-
útvegsins og viðskiptalífsins vegna þessa. Árni ræðir venjulega
stefnu fyrirtækisins á aðalfundum og þar lýsti hann því yfir fyrir
nokkrum árum að Grandi hefði áhuga á sameiningu á
suðvestur-horni landsins en Grandi missti af HB þegar Brim,
sjávarútvegsstoð Eimskips, varð til í fyrra. Það var nokkurt
áfall því að Árni hafði stefnt að sameiningu við HB um nokkurt
skeið. En það eru fleiri fiskar í sjónum og nú hefur Grandi
snúið sér að Þorbirni Fiskanesi í Grindavík. Má ef til vill búast
við tíðindum úr þeim ranni á næstu vikum eða mánuðum.
Árni fylgist einstaklega vel með aflabrögðum, horfum og
42