Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 82
RÍKUSTU ENGLENDINGflRNIR
Studies, því þar munu hann og dæturnar leggja til
20 milljónir punda næstu 10 árin.
Moussaieff-fjölskyldan í 612. sæti Annar
Norðurlandabúi á listanum er norski skipakóngur-
inn John Frederiksen í 66. sæti, nýr á listanum,
metinn á 475 milljónir punda. Fyrir tveimur árum
vann hann sér það til frægðar hér að kaupa dýrasta
hús í London, á 40 milljónir punda. Hann á stærsta
olíuskipaflota í heimi, átti erfitt ár í fyrra en nú
blasir kannski eitthvað betra við. Samdráttur í
margvíslegum útgáfum blasir einnig við á list-
anum. I fyrsta skipti í tíu ár hefur samanlögð auð-
legð allra á auðkýfingalistanum skroppið saman.
Sér kannski ekki högg á vatni, því þetta er um 2%.
Ovissa og samdráttur hefur líka sett strik í reikn-
inginn í skartgripasölu Moussaieff-fjiilskyld-
unnar. Fjölskyldan er í 612. sæti, metin á 59 millj-
ónir punda, eða um 7 milljarða króna.
Paul McCartney Tónfistarmenn hafa sitt að segja. í 29. sæti,
efstur tónlistarmanna, er fornbítílfinn Sir Paul McCartney,
metinn á 760 milljónir, næstum tvöfalt á við söngleikjakónginn
Andrew Lloyd-Webber, sem metínn er á 400 milljónir. Efsta
tónfistarkonan er Madonna í 4. sæti tónlistarfistans ásamt
manni sínum Guy Ritohie, metin á 227 milljónir. Mick Jagger
er „sir“ eins og Paul, aðeins metinn á 175 milljónir, Sir Elton á
170 milljónir og annar rollingur, Keith Richards, er metínn á
150 milljónir. Rolfingarnar hafa snjallan flárfesti, en alveg fyrir-
hafnarlaust nilla 40 milljónir punda af stefgjöldum tíl Rolfing-
anna árlega.
Gjafir tíl góðgerðamála eru einnig kannaðar og það eru ekki
þeir ríkustu, sem eru gjafmildastir. Sainsbury lávarður, af
samnefndri kjörbúðaöölskyldu, gaf reyndar 23 milljónir punda
á árinu, en kemst þó aðeins í 16. sæti á fistanum yfir þá örlátustu
því þetta er aðeins 1,58% af eignum hans, sem eru metnar á 1,5
milljarða punda. Lávarðurinn gaf í fyrra 2 milljónir til Verka-
mannaflokksins og annað eins nýlega. Það þykir ýmsum
ósmart, því að hann er vísindamálaráðherra og gæti flokksfor-
ystan rekið ráðherra sem er örlátastur afira? Ekki síst af því að
tjármál flokksins eru ijúkandi lúst. Þeir sem eru í 2. og 3. sæti
á fistanum yfir styrktarmenn stjórnmálaflokkanna gáfú „aðeins"
500 og 150 þúsund pund, líka til Verkamannaflokksins, svo að
gjafmildi kjörbúðalávarðarins er einstök.
Elísabet drottning En víkjum að Elísabetu drottningu. Hún
hefur eignir krúnunnar á sinni könnu, en persónulegar eignir
hennar gera hana að 133. ríkasta manni Bretaveldis. Hún á auð-
vitað ekki Buckinghamhöll prívat og persónulega, en þó tvær
halfir, að Sandringham og Baknoral, sem hún heldur firna
mikið upp á. Svo mikið að hún hefur ekki getað fallist á að borga
erfðaskatt, því að hún óttast að þá missi hún halfirnar. Það er nú
kannski misskilningur, varla neitt sem verður tekið af henni,
heldur yrði bara sett upp sjálfseignastofnun um eignir hennar.
Auk hallanna á hún fleiri húseignir.
listaverk drottningarinnar eru metin á tvær
milljónir, en það er aðeins brot af fistaverkaeign
krúnunnar sem er metin á 10 milljarða punda. Auk
þess á hún skartgripi, frímerki, hesta og fleira smá-
legt Fjárfestíngasjóður hennar er metinn á 80 millj-
ónir, en hefur skroppið saman undanfarið eins og
fleiri sjóðir.
I fyrra skilaði þingnethd skýrslu þar sem eigna-
sýsla drottningar var mjög gagnrýnd. Ekki þó sjálf
drottningin, en ráðunautar hennar þykja átakan-
lega gamaldags, enda fátt nútímalegt við drottning-
una og umsvif hennar. I skýrslunni var harðlega
gagnrýnt að ýmsir fjarskyldir ættingjar drottningar
skuli fá að búa í vistarverum krúnunnar fyrir hlægi-
lega leigu. Þannig njóta Mikael prins af Jórvík og
kona hans 8 herbergja íbúðar í Kensington höll
fyrir 69 pund á viku. Eg þekki ekki einu sinni stúd-
enta hér í einu herbergi, sem greiða minna en 120
pund á viku og fyrir þá leigu fást sannarlega ekki
konunglegar vistarverur.
Drottningin kann þó ekki við að stjaka við þessum ætt-
mennum sínum, heldur ætlar sjálf að niðurgreiða leigu þeirra.
Sunday Times áætlar að það kostí hana milljón pund á ári. En
fleiri ættmenni íþyngja drottningarbuddunni. I fyrra dó móðir
hennar á 102. aldursári. Einhverjar eignir erfir drottningin efdr
móður sína, en einnig 4 milljóna punda yfirdrátt gömlu kon-
unnar, sem var ern fram í andlátið. Það er ekki hægt að segja að
drottningin íþyngi pyngjum landa sinna ef á það er fitið að hún
fær minna en pund frá hverju mannsbarni á ári. En safnast
þegar saman kemur og það ergir æ fleiri hér að hún skufi fá
tæpar 50 milljónir punda af ósviknum skattpundum á hveiju ári.
Greiðslan er flókinn pakki skattaívilnana, reiðufjár og framlaga
af ýmsu tagi. Miðað við minnkandi vinsældir konungstjölskyld-
unnar er ekki víst að þetta fáist að eilifu.
Þjónn DÍÖnil prinsessu í fyrra veittu réttarhöld yfir fyrrum
þjóni Díönu prinsessu margvíslega innsýn inn í heimifis-
haldið í höllinni. Þjónninn var ásakaður um að hafa nappað og
selt dót sem prinsessan átti, en þegar yfirheyrslur yfir honum
áttu að heíjast mundi drottningin að hún vissi allt um það að
hann hefði fengið dótíð, ekki stolið því, og ákæran var felld
niður. Þetta þótti undarlegt, leit helst út fyrir að hún hefði ekki
kært sig um að þjónninn segði frá. Þarna kom allavega fram
að starfsfólk hirðarinnar er á soddan lúsarlaunum að það fær
alls kyns glingur gefins - gjafir sem fjölskyldan nennir ekki að
eiga - til að selja í ágóðaskyni fyrir sjálft sig. Eins og einn þing-
maður spurði nýlega: „Hvernig stendur á því að ein ríkasta
tjölskylda Englands getur ekki borgað starfsfólki sínu mann-
sæmandi laun?“ Nýlega hitti ég viðskiptafræðing sem vinnur
við hirðina. Hann fræddi mig á því að enginn ynni þarna
vegna launanna, en þetta væri góð reynsla og frábær ávísun á
önnur störf síðar meir. Þegar ég spurði hvort þarna væri allt
eins forpokað og virtist hló hann og sagði að ég gæti örugg-
lega ekki ímyndað mér allt það skrýtna sem þarna tíðkaðist...
og það þrætti ég ekki fyrir. ffij
í stuttu máli:
Á auðkýfingalista
Sunday Times eru
1.014 karlar og
79 konur.
fllls 753 á
listanum yfir
1.000 ríkustu
Englendingana
byggja á auði sem
þeir hafa sjálfir
aflað, en 247 hafa
erft auðæfin.
82