Frjáls verslun - 01.04.2003, Side 88
„Það allra besta sem hægt er að gera til að endurnýja batteríin að lokinni vinnuviku er að skella fellihýsinu aftan í bílinn,
koma börnunum fyrir í aftursætinu og aka af stað," segir Björgvin Barðdal, framkvæmdastjóri Seglagerðarinnar Ægis.
Seglagerðin Ægir:
Einfaldur ferðamáti nútímamannsins
Seglagerðin Ægir. Nafnið kallar fram
mynd af seglagerðarmanni sem situr
úti við og er að sauma saman segl.
: Rómantísk mynd og falleg en kannski ekki
, alveg raunsæ því að á 90 ára ferli sínum
hefur Seglagerðin Ægir fylgt þróuninni og
I nú býður fyrirtækið ekki bara segl heldur
ííi einnig gríðarlega gott úrval af fellihýsum,
jj tjiildum og þjónustu við allt mögulegt. Má
þar nefna dúka í heita potta og sundlaugar, skyggni á hús og
fyrirtæki, auglýsingaborða, yfirbreiðslur, smáhluti fyrir tjöld
| og segl, dýnur og strætóskýli.
úr tjaldi í fellihýsi Rétt eins og snigillinn tekur húsið sitt
með sér og getur sest að þar sem honum sýnist, býður felli-
| hýsi upp á að ijölskyldan leggi af stað út í guðsgræna
ji náttúruna með litlum sem engum fyrirvara ef henni býður
svo við að horfa.
„Það allra besta sem hægt er að gera til að endurnýja
i batteríin að lokinni vinnuviku er að skella fellihýsinu aftan í
bílinn, koma börnunum fyrir í aftursætinu og aka af stað,“
segir Björgvin Barðdal, framkvæmdastjóri Seglagerðarinnar
Ægis. „Það er allt til staðar í fellihýsinu og ekkert þarf að gera
annað en taka til nestið og aukaföt og leggja af stað, elta sól-
; ina og njóta náttúrunnar."
Björgvin segist sjá mikla aukningu í fellihýsaeign lands-
: manna og að því fari fjarri að um sé að ræða bólu sem næði
hámarki og springi eins og spáð hafi verið.
„Það er mikil geijun í þessum markaði og ég
sé fólk koma og skipta felfihýsinu út fyrir
stærra. Endursalan er góð og vagnar stoppa
sjaldnast meira en nokkra daga hjá okkur
þegar þeir koma inn í endursölu. Það hjálpar
líka að nú er dollarinn í sögulegu lágmarki
og því hefur verðið lækkað frá því í fyrra og
afskaplega hagstætt að kaupa fefiihýsi. Það
má eiginlega segja sem svo að það sé frábær fjárfesting því þeir
geta ekki gert neitt annað en að hækka í verði seinna.
90 ára fyrirtæki Seglagerðin Ægir er þekkt á landsvísu, enda
orðin 90 ára gömul. Fyrst í stað var fýrirtækið aðeins tveir
menn með saumavél en frá árinu 1950 hefur sama fjölskyldan
rekið fyrirtækið og er Björgvin Barðdal af þriðju kynslóð.
„Maður er auðvitað alinn upp við þetta og hefur átt heima
í Ægi frá fæðingu," segir hann glettinn. „Það er gaman að sjá
fyrirtækið blómstra og stækka eins og það hefur gert en það
hefúr síðustu árin verið meðal 300 stærstu fyrirtækja lands-
ins. Starfsmenn eru hér 20 að vetrarlagi en þeim ijölgar upp í
rúmlega 40 yfir sumarið. Við erum staðstett að Eyjaslóð 7 og
við húsið er risatjald þar sem hægt er að skoða allar gerðir
fellihýsa og tjaldvagna hvernig sem viðrar. Heimasíða okkar:
www.seglagerdin.is er full upplýsinga og mynda og geta
áhugasamir skoðað í smáatriðum áður en þeir koma og
þannig gert sér góða grein fyrir því sem um er að ræða.“ 33
Það erþægilegt að skella
fellihýsi aftan í bílinn,
hvortsem bíllinn erjeppi
eða fólksbíll, og leggja af
stað í ferð um landið.
88