Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 90
Úr verslun Hörpu Sjafnar hf. í Skeifunni 4 en þar er lengri opnunartími um helgar en í öðrum verslunum fyrirtækisins. Helgar-
vaktin í Skeifunni 4 er til kl. 18 á laugardögum og sunnudögum.
Harpa Sjöfn:
Heimurinn í lit
Aíslandi eru nú reknar 3 málningar-
verksmiðjur og er Harpa Sjöfn
stærst þeirra og sú eina sem rekur
keðju eigin verslana. Yfir 80% af sölu
Hörpu Sjafnar fer í gegnum eigin versl-
anir og með því telja forráðamenn fyrir-
tækisins sig ná mikilvægum beinum
tengslum við markaðinn og viðskiptavin-
ina. Islensk málning hefur á sér orð fyrir
gæði og má líta á gæðaímynd hennar sem sterkasta vopnið í
samkeppni við innfluttar málningarvörur.
Málningarverksmiðjan Harpa Sjöfn stendur á gömlum
merg en hún varð til við sameiningu málningarverksmiðja
Hörpu í Reykjavík og Sjafnar á Akureyri í september 2001.
Verksmiðjan var í eigu þessara tveggja fyrirtækja þar til í
nóvember 2002 að eigendur Hörpu keyptu hlut norðan-
manna og eru nú einu eigendur fyrirtækisins.
Harpa hf. var stofnuð árið 1936 og Sjöfn enn fyrr. Hér er
því að grunni til um að ræða eitt af eldri iðnfyrirtækjum
landsins sem hefur þróast í gegnum allar þær hræringar sem
orðið hafa í atvinnulífi landsmanna frá því á fyrri hluta
síðustu aldar.
Fyrir alla - almenning og fagmenn Harpa Sjöfn hf. rekur
átta eigin málningarverslanir þar sem lögð er megináhersla á
skjóta persónulega þjónustu fagmanna. Um er að ræða
alhliða málningarvöruverslanir sem selja allt sem þarf til mál-
unar; inni-og útimálningu, viðarvarnarefni, lökk, spörtl, verk-
færi, áhöld og aðrar stuðningsvörur sem fólk þarfnast vegna
málunar. Verslanir Hörpu Sjafnar eru jafnt
fyrir almenning og fagmenn. Báðir hópar
fá vörur og þjónustu við sitt hæfi í verslun-
unum. Mest af þeirri málningu sem er á
boðstólum í verslunum Hörpu Sjafnar er
framleitt í verksmiðju fyrirtækisins undir
gæðaeftirliti rannsóknarstofu og efna-
verkfræðinga. Islensk málning er þekkt
fyrir gæði og endingu. Hún er fundin upp
og þróuð fyrir íslenskar aðstæður, ekki síst íslenskar veðurað-
stæður, enda er grunnhugsun Hörpu Sjafnar: Gæði, þjónusta
og gott verð.
Framkvæmdastjóri Hörpu Sjafnar hf. er Helgi Magnússon,
Vigfús Gíslason er sölustjóri, Omar Gunnarsson er yfirverk-
fræðingur og Jón Bjarni Gunnarsson er tjármálastjóri. 33
Uerslanirnar átta eru reknar á helstu þéttbýlis-
suæðum landsins: Á Akureyri í Sjafnarhúsinu að
Austursíðu 2, í Keflauík að Hafnargötu 90, á Sel-
fossi í samstarfi uið Búrekstrardeild KÁ að Aust-
uruegi 69, í Hafnarfirði að Dalshrauni 13, í Kópa-
uogi uið Bæjarlind 6 og loks eru þrjár uerslanir í
Reykjauík - á Snorrabraut 56, í Skeifunni 4 og að
Stórhöfða 44 þar sem Harpa Sjöfn er einnig með
höfuðstöðuar sínar.
Fallega málað hús gleður
auga pess sem fram hjá
gengur auk þess sem eigand-
inn fyllist stolti i hvert sinn
sem hann horfir á húsiö sitt.
90