Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 104
Jón Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi Robert Wessman, forstjóri Pharmaco.
Group.
Sumartími - vetrartími?
Arlega, eiginlega tvisvar á ári, koma upp umræður um
það hvort taka eigi upp sömu háttu og var, að breyta
klukkunni vor og haust til samræmis við birtuna. Skoð-
anir eru skiptar, allt frá því að segja að fólk geti bara vaknað
fyrr og mætt, hvað svo sem klukkan segir, upp í það að telja
fyrirtæki nær óstarfhæf stóran hluta ársins þar sem þau fylgi
ekki öðrum löndum.
Stórfyrirtæki sem eiga mikil viðskipti erlendis finna mest
fyrir þessu og þeir Jón Scheving Thorsteinsson og Róbert
Wessman segja sitt álit á málinu.
Held mig við íslenskan tíma „Ég ferðast 100-120 daga á ári og
vinn svo mikið með fólki jafnt austan hafs sem vestan," segir Jón
Scheving Thorsteinsson, framkvæmdasljóri hjá Baugi Group.
„Það er mun auðveldara að vinna með samstarfsaðilum í Banda-
ríkjunum á sumrin þar sem tímamunur er minni en á veturna.
Þegar ég er á ferðalögum reyni ég oftast nær að halda mig
við íslensku klukkuna, sofa þegar heima er nótt og nærast á
svipuðum tímum og ég geri hér heima og allt hringl með
klukkuna á Islandi væri mér því til óþurftar. Hins vegar var
mjög skemmtilegt á námsárum mínum í Bandaríkjunum
þegar klukkan færðist til á haustin. Þetta gerðist alltaf um
helgi og því gafst færi á að sofa lengur. Það var hins vegar hið
versta mál þegar klukkan var færð til baka á vorin því þá
helgina tapaði maður klukkustund í svefni.“
Kæmi sér betur „I dag er uppistaðan af starfsemi Pharmaco
erlendis eða um 95% af veltunni. Það myndi því henta fyrir-
tækinu betur ef tekinn væri upp sumartími í takt við það sem
gerist erlendis," segir Róbert Wessman, framkvæmdastjóri
hjá Pharmaco. „Með því móti er hægt að ná í menn erlendis
lengur á daginn en ella, bæði í eigin skrifstofur og viðskipta-
vini Pharmaco.
Einnig væri það kostur fyrir starfsfólk að komast heim
þegar meira er eftir af sólardeginum og þannig notið sumars-
ins betur en ella.“ SH
Enginn tími laus
Hvað er að golfi?
Ritari golfklúbbs: Mér þykir það leitt en
það er bara enginn tími laus á vellinum í dag.
Meðlimur: Nú? En hvað ef ég segði þér að
Davíð Oddsson ætlaði að koma og leika einn
leik. Myndir þú finna tíma fyrir hann?
Ritarinn: Já, það myndi ég geta - að sjálf-
sögðu.
Meðlimur: Jæja, það vill svo til að ég veit
að hann er erlendis núna svo ég ætla að nota
tímann hanslS!]
Forstjórinn var í læknisskoðun og læknirinn ráðlagði honum að hreyfa
sig meira. Hann fussaði við sundi og líkamsrækt en taldi í lagi að reyna
við golf.
Nokkrum vikum seinna kom hann aftur í skoðun og spurði lækninn
hvort það væri ekki hægt að finna aðra leið til hreyfinga.
„Hvað er athugavert við golf?“ spurði læknirinn. „Það er ein besta
hreyfing sem þú getur fengið og frábær leikur."
„Það er örugglega rétt hjá þér,“ sagði þá forstjórinn. „En vandamálið
er að þegar ég set kúluna þar sem ég sé hana, er engin leið til að ég hitti
hana og ef ég set hana þar sem ég hitti hana, sé ég hana ekki!“ S5
104