Frjáls verslun - 01.04.2003, Page 111
Hið nýja hús
Orkuveitunnar
horfir yfir
sundin og
Esjuna.
Útsýnið er
vægt sagt
fallegt en
húsið er
byggt þannig
að sem flestir
njóti þess.
Á milli húsanna eru opnir pallar eða gangar. Fólk hittist þar gjarnan og spjallar.
„Þetta eru þrjár byggingar sem vísar að nokkru í það að hér
eru þrjú fyrirtæki sameinuð undir einu þaki,“ bætir hann við.
„Húsið er byggt á þann veg að neðsta húsið er e.k. klöpp og
ofan á henni sitja hin tvö húsin en þau eru afar ólík að gerð.
Vesturhúsið er létt, svífandi og byggt með óhefðbundnum
hætti á meðan austurhúsið er formfast og hefðbundið í laginu.
Þetta má segja að sé um leið lýsandi fyrir ímynd fyrirtækisins
sem er bæði gamalt og gróið en um leið framsækið hátækni-
fyrirtæki þar sem allt það nýjasta er notað.“
Létt 09 bjart Þegar komið er inn í móttökuna vekur strax
athygli hversu hátt er til lofts og bjart inni. Gestir lenda strax
í miðju hússins, háu hvolfrými, sem hýsir aðalsamgönguæðar
hússins, stiga, lyftur og brýr. Gestir átta sig strax á stað-
háttum og skynja lífið í húsinu. Mikill glerveggur, sem snýr
að íbúum Arbæjarhverfis, gerir þeim kleift að sjá þvert í
gegnum húsið, út á Sundin og upp til íjalla.
„Þessi útfærsla gerir það að verkum að léttara verður yfir
byggingunni og ólíkir byggingarhlutarnir verða skýrari og
form hússins áhrifarneira," segir Olafur Hersisson, arkitekt
hjá Hornsteinum. „íbúar nágrannabyggðarinnar geta með
góðu móti séð í gegnum húsið sem fyrir vikið verður allt um-
fangsminna í umhverfinu, þessi leið var um leið hagkvæm og
einföld. Það að hafa húsið svona opið og búa til umferðarleiðir
úr brúm og stigum í stað þess að vera með hefðbundna langa
skrifstofuganga, skapar andrúmsloft og samfélag þar sem
starfsfólkið hittist óhjákvæmilega meira og kynnist þannig
betur.“
Matslofan ylæsiley Á fyrstu hæð hússins er að finna
matstofu þar sem starfsfólk kemur saman og getur jafnvel
setið úti á góðviðrisdögum. Lítil tjörn með flúðum og fossum
er fyrir framan matstofuna og allt umhverfi einstaklega þægi-
legt. Á sömu hæð er bókasafn fyrirtækisins þar sem starfs-
111