Frjáls verslun - 01.04.2003, Side 112
Ólafur Hersisson arktitekt, Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt og Kolbeinn Bjarnason, kynningarfulltrúi hjá Orkuveitunni.
Matstofan er frábær. Fyrir utan er tjörn og hægt að setja
borðin út á góðviðrisdögum.
Móttakan á fyrstu hæð og stiginn upp.
fólk og almenningur hefur möguleika á að kynna sér blöð og
bækur og leita upplýsinga um allt hið nýjasta í orkumálum.
„Orkuveitan leggur mikla áherslu á samtengingu við
almenning og það að hingað sé ekki verið að koma eingöngu
til að borga reikninga," segir Ögmundur. ,ýVf þeim ástæðum
var gert ráð fýrir þjónustuveri á jarðhæð þar sem til staðar er
upplýsingaborð, sparisjóður, sýningarrými og iýrirlestrar-
salir, ásamt netkaffi. Þetta verður til þess að í húsið kemur
íjöldi fólks sem annars ætti þangað ekkert sérstakt erindi.
Svona stórbyggingar hafa skyldur við umhverfi sitt, og þetta
er leyst á mjög spennandi hátt hjá Orkuveitunni og húsið
nýtist enn betur fýrir vikið.“
Nýjungar Margar nýjungar er að finna í húsinu og ein
þeirra er rafhlaðið gler.
„Þar sem fundarherbergin eru glerklædd og lítið mál að
horfa inn í þau, þurftum við að finna leið til þess að hægt væri
að loka þeim ef brýna nauðsyn bæri til,“ segir Ólafur.
„Lausnin, sem við fundum, er fólgin í þvi að nota „rafmagns-
gler“ í tilraunaskyni á tveimur stöðum, en um leið og hleypt
er rafmagni á glerið verður það ógagnsætt og því hægt að
nota glerveggina t.d. til myndsýninga eða glærusýninga.
Þetta er hátækni sem á við í hátæknifýrirtæki sem þessu.
Hurðir inn í deildir eru sömuleiðis úr gleri og bæði sjálf-
stýrðar og hægt að opna þær með því að ýta á þær innan frá
ef rafmagnið fer af þeim og þær afstillast."
Opna rýmið Nokkuð hefur verið umdeilt hvort opið rými
eigi rétt á sér í skrifstofubyggingum en Kolbeinn segir afar
vel hafa tekist til í nýju byggingunni. „Hver hæð er sérstök en
hefur þó ákveðin sameiginleg einkenni með öllum hinum,"
segir hann. „Allir starfsmenn hafa skápa og vinnustöðvar sem
þeir geta flutt með sér með öllu sínu dóti ef t.d. kemur upp sú
staða að þeir þurfi að vinna á annarri starfsstöð um tíma.
Þetta er til mikilla þæginda, ekki síst fýrir þá sem þurfa að
sinna margvíslegum störfum í öllum deildum. Þar sem húsið
er ekki breiðara en raun ber vitni er gott útsýni fyrir alla,
meira að segja á neðstu hæð, en ég tel það afar mikinn kost
112
Frh. á bls. 115