Frjáls verslun - 01.04.2003, Síða 122
Ég verð að fá að skapa eitthvað annað slagið svo mér líði vel og þá mála ég myndir," segir Gunnhildur Þórarinsdóttir.
Gunnhildur Þórarinsdóttir,
Th. Gunnarsson heildverslun
Efár Vigdísi Stefónsdóttur
Gunnhildur Þórarins-
dóttir féll fyrir trölli.
Ekki venjulegu lifandi
trölli heldur litlu sætu leir-
trölli. Það varð til þess að hún
fór að flytja inn styttur og
fleira frá Noregi og þar með
varð til fyrirtækið Th. Gunn-
arsson heildverslun ehf.
„Við rekum saman heild-
verslunina Th. Gunnarsson,
ég og eiginmaður minn,
Sveinn Ottósson," segir Gunn-
hildur. „Það atvikaðist nú
reyndar þannig að sonur
mannsins míns gaf okkur
styttu frá Noregi. Okkur þótti
styttan falleg og vel unnin og
ákváðum að hafa samband við
fyrirtækið úti og þar sem
Sveinn talar norsku eins og
122
innfæddur gekk þetta vel fyrir
sig og við sáum strax að þarna
var um gott vöruúrval að
ræða.“ Th. Guðmundsson
flytur einnig inn keltneska
skartgripi og hinn fræga Lord
of the Rings hring. „Svo
seljum við kross sem faðir
minn, sem var guUsmiður, bjó
til ásamt gullsmíðafélaga sín-
um, en hann er með Faðirvor-
inu á,“ segir Gunnhildur. „Það
má ef til vill segja að við leggj-
um áherslu á vörur tengdar
ferðamannageiranum þó svo
úrvalið sé meira, Ld skart-
gripir margs konar og styttur."
Gunnhildur lauk verslun-
arskólaprófi frá Verslunar-
skóla Islands en fór eftir það í
Iðnskólann og lærði tækni-
teiknun. Hún lét það ekki
duga heldur fór til Danmörku
nokkrum árum seinna og
lærði gluggaútstillingar og
tók önn við Iðnskólann í gull-
smiði ásamt því að vinna á
gullsmíðaverkstæði föður
síns. ,Á milli þess að ég lauk
tækniteiknuninni og fór út til
Danmörku vann ég á endur-
skoðunarskrifstofu og á aug-
lýsingastofu Kristínar," segir
Gunnhildur. „Eg vann líka
alltaf með skólanum og
kynntist m.a. ferðamanna-
bransanum þá og þótti hann
spennandi og skemmtilegur."
Aðaláhugamál Gunnhildar
er list og listsköpun af ýmsu
tagi en hún segist líka hafa
gaman af sölumennsku og
ferðalögum.
„Eg verð að fá að skapa
eitthvað af og til svo mér líði
vel og þá mála ég myndir. Það
er nú mest fyrir sjálfa mig en
þó hef ég selt svolítið af mynd-
um af og til þvf þegar country-
bylgjan hófst hér á landi mál-
aði ég á rekavið og spýtur og
föndraði og seldi á handverks-
mörkuðum. Eg syndi talsvert
og nýt þess að hreyfa mig úti
við. Eg hef líka gríðarlega
gaman af því að ferðast og þá
sérstaklega á Islandi en við
gerum mikið af því að fara
með tjaldvagn og eyða tíma í
guðsgrænni náttúrunni og
hlaða með því batteríin. Svo
ferðumst við um heiminn og
víkkum með því sjóndeildar-
hringinn en uppáhalds-
staðirnir eru Danmörk og
Noregur. Hinsvegar hefur
hver staður sinn sjarma og við
bara njótum þess þar sem við
erum hverju sinni.“ B!1