Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 30
108
MORGUNN
sanni kærleikur og grundvöllur eigin sáluhjálpar þess er þann-
ig breytir. Það sé þannig gagnverkandi til góðs fyrir bæði ein-
staklinginn sjálfan og náunga hans.
„Án mín gelið þér alls ekkert gjörtu — Englar og menn.
(Jóh. XV,5).
Útlistanir Swedenborgs inn lífið sjálft, eðli þess og grundvöll,
gefa algjörlega nýtt viðhorf til þessa leyndardóms og hinna
miklu undra þess, sem blasa við oss, en eru oss þó svo undar-
lega dulin. — Hann segir: Menn, andar og englar eru lifs-
myndir hinnar takmörkuðu sköpunar mismunandi lífssviða al-
verunnar. — Englarnir eru í upphafi skapaðir og hafa lifað
sem venjulegir menn og hafa ekki verið skapaðir sem heilagar
verur mönnum æðri, en hafa sakir hreinlífis og réttlætis náð
að eignast þegnrétt í himnunum og himnamir eru skapaðir til
að vera heimkynni fyrir þá, og til að veita mönmnn jarðar,
sem em eins og þeir, bústað og heimkynni. Menn og englar
eru þannig gerðir, að þeir eru móttökutæki eða birtingarform
lífsins, en lífið sjálft er innflæði frá guðdómnum, - já, guð-
dómsaflið sjálft. Maðurinn hefur í heila sinum móttökustöð
lífsins frá Guði, og þótt maðurinn viti það alls ekki, þá flæðir
lífsorkan inn til hans frá augnabliki til augnabliks fyrir guð-
lega náð. Þetta lífsafl, segir Swedenhorg, sem vér þekkjum sem
tilfinningar vorar, er kærleikurinn sjálfur, þótt enginn hafi
fyrr vitað þetta en mér var það opinberað. Þetta er það afl,
sem gefur honrnn lífið sjálft með öllum hæfileikum hans, og
hugsunin sjálf er af þessu mnnin. Og samkvæmt þessu er það