Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 4
82
MORGUNN
andi hætti sé; að einn Guð hafi skapað þennan heim af almætti
sínu, ásamt öllu dauðlegu og lifandi, sem í honum er, og þar
með einnig oss sjálfa; og þá einnig, að að baki hins sjáanlega
sé andlegur veruleiki og eilift lif mannsins á andlegum svið-
um, og þá um leið að siðferði og breytni manna í veraldarlíf-
inu skipti höfuðmáli fyrir andlega velferð í eilífðinni.
Hæst af spámönnunum og hinum eldri trúarleiðtogum bera
nöfn eins og Mose, Buddha, Jesaja, Zoroaster, Jeremía, en
bæði nær og fjær í tímanum standa enn aðrir, sumir þekktir,
aðrir gleymdir, sem voru veigamiklir hluttakendur i sköpun
trúararfs mannkyns. — Mætti þar nefna marga til viðbótar
eins og til dæmis Rama og Krisna í Indlandi, Confucius og Lao
Tze í Kína, Hermes og keisarann Amenhotep IV, öðru nafni
Akhnaton, i Egyptalandi, auk margra fleiri. Þá mætti einnig
geta þess, að við skjalafund á síðustu tímum í hellum í Gyð-
ingalandi, svokallaðra Deadsea Scrolls, eða handritanna við
Dauðahaf, hefur komið í ljós, að meðal Essena, sem var leyni-
legt samfélag helgra manna, er þarna starfaði löngu fyrir og
fram yfir Kristshurð, mun hafa verið uppi mikill andi, sem
ekkert nafn er þekkt á, en sem nefndur var Kennifaðir Rétt-
lætisins. — Talið er líklegt að þessi mikli kennifaðir og sam-
félag Essenanna hafi ef til vill lagt grundvöllinn að, eða a. m.
k. varðveitt frá eldri tíma, kjarna þeirra fullkomnu trúar- og
siðferðiskenninga, sem Jesús Kristur, drottinn vor, flutti mann-
kyninu, og staðfesti með lifi sínu og dauða.
Öllum þessum innblásnu öndum, spámönnum og trúarleið-
togum, hefur verið það sameiginlegt, að þeir hafa verið miklir
og stórbrotnir sjáendur, sem höfðu spádómsgáfuna og krafta-
verkamáttinn þannig að þeir gnæfðu upp yfir aðra menn í
vizku og mætti, sem gerði það að verkum, að þeir, sem áttu
hina inmi barnslegu skyggni trúarinnsæisins óspillta og
óhrenglaða í sálu sinni, gátu ekki annað en játað tilveru hins
andlega veruleika og fyllzt ósegjanlegri hrifningu og trúar-
vissu fyrir sakir hins guðdómlega krafts og vizku er þessir
miklu persónuleikar opinberuðu í kenningum og máttar-
verkum.