Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 70
148
MORGUNN
Hvar var
Lnrancy
Vennum ?
þylja upp ýmis konar skilaboð í sumum bréfarma, og þegar
frú Roff kom aftur heim þennan dag, komst hún að því, að
allt var það nákvæmlega rétt hermt.
Eftir þessa stuttu heimsókn tók Lurancy að krefjast þess að
hún fengi að búa hjá Roff-fjölskyldunni. En foreldrar heimar
voru þeirrar skoðunar, að slíkt mundi verða byrði á Roff-hjón-
unum, ef þau tækju það í mál, því til þess væru sterkar líkur,
að Lurancy fengi aftur ofsaleg geðveikiköst, eins og læknarair
höfðu spáð.
En Lurancy fekk vilja sinn, og þann 11. febrúar árið 1887
fór hún til þess að búa hjá Roff-hjónunum sem Mary Roff.
Sjálf sagði hún, að þessi heimsókn mundi aðeins standa fram
í maímánuð, því „englarnir“, eins og hún komst að orði, hefðu
aðeins veitt henni þann tíma.
Nú var spumingin þessi: Var þetta í raun og
veru hin eiginlega Mary Roff, sem var að
heimsækja foreldra sína í gervi Lurancy
Vennum? Og ef svo var, hvar var þá hin
raunverulega Lurancy?
Sjálf var hún spurð að þessu, og fullvissaði stúlkan Roff-
hjónin um það, að hún væri í raun réttri dóttir þeirra, og hún
mundi reyna að sanna það. En hvað Lurancy Vennum við-
véki, þá væri hún annars staðar til lækninga og mundi koma
aftur, þegar hún væri búin að fá bót meina sinna, andlega og
líkamlega. Og þegar Lurancy væri reiðubúin að „koma aft-
ur“, eins og hún sagði, yrði Mary Roff að víkja.
Eins og eðlilegt er, vakti þetta allt saman feikna athygli
víða um land, og óhjákvæmilegt var, að þetta yrði rannsakað
nánar. Sjálfur skrifaði Stevens læknir ágæta bók byggða á
persónulegri þekkingu sinni á málinu, heitir hún Watseka
undrifi. Annar maður, sem rannsakaði fyrirbrigðið og ritaði
ítarlega um það, var sálfræðingurinn William James. Og
vitanlega var blöðum í og umhverfis Chicago tíðrætt um þetta
efni, og voru um það ritaður fjöldi blaðagreina.
Það sem athyglisverðast er af staðreyndum málsins er það,
að Lurancy Vennum lifði lífi hinnar látnu Mary Roff hjá ætt-