Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 104
182
MORGUNN
manni sínum frábærlega vel í andstreymi lífsins. Hitt var og
gæfa hans að komast um tíma undir handleiðslu Einars H.
Kvarans, skálds, sem vafalaust var hæfasti þjálfari miðla, sem
völ var á. Hefur það hjálpað Andrési til þess að sætta sig við
þessa undarlegu hæfileika, sem oft ollu honum vandræðum og
vöktu jafnvel andúð félaga hans, sem sumir hverjir töldu hann
ekki með öllum mjalla. En þetta er sameiginleg saga margra
miðla. Það virðist einhvern veginn ófyrirgefanlegt að vera
öðru vísi en aðrir. Að maður tali nú ekki um að geta skyggnzt
inn í heima, sem eru venjulegu fólki lokuð bók.
Þá er einnig ánægjulegt að fá frásagnir af Kristínu Kristjáns-
son, sem gædd var miklum dulrænum hæfileikum. Bjó hún
yfir bæði fortíðar- og framtíðarskyggni, auk þess sem hún
varð vör við það sem gerðist fjarri henni í nútíðinni. Þessi
völva var mjög skyggn á örlög manna og forspár hennar jafn-
an merkilegar.
Margrét frá öxnafelli er landskunn sem lækningamiðill og
hefur sem slíkur lengstan starfsferil að baki hér á landi. Hún
er gædd fjölþættum dulargáfum; hefur auk skyggnigáfunnar
mikla fjarsýnigáfu og fer iðulega sálförum út fyrir jarðsviðið
og inn í annan heim.
Um Hafstein Björnsson þarf ekki að fjölyrði. Hann er nú
frægastur miðill á íslandi og áreiðanlega á vissum sviðum í
hópi merkustu miðla sem nú eru uppi í heiminum. Hann á
lengstan feril transmiðla hér á landi og er án efa mesti skyggni-
lýsingamiðill sem við höfum átt, auk þess sem hann er frábær
lækningamikill. Mun vart ofsagt að hann sé meðal sterkustu
sannanamiðla sem nú eru uppi.
Þegar þess er minnzt, að Andrés Böðvarsson var engum
miðli líkur hvað flutningafyrirbæri snertir, verður ljóst hvern-
ig þessir f jórir miðlar bera af hver á sínu sviði.
Eykur þetta mjög gildi þessarar síðustu bókar frú Elínborg-
ar, ekki sízt þegar þess er gætt, að allt efni hennar er nýtt og
áður óprentað. Þá er eftirmáli höfundar athyglisverður. Það er
mikils virði að kynnast skoðunum þessarar öldnu, sanntrúuðu
og lífsreyndu konu á þessum merku tímamótum í ævi hennar.