Morgunn - 01.12.1971, Blaðsíða 85
HUGBOÐ OG FRAMSÝN
163
boð hans táknaði. Við læknisrannsókn kom í ljós, að konan
hafði látizt af hjartaslagi, þótt hún hefði aldrei áður kennt sér
meins í því sambandi.
Eins og ljóst er af þeim tveim dæmum, sem ég hér hef nefnt
um hugboð, þá var báðum möimunum, sem þar koma við sögu,
ekki ljóst hvað væri að. Það kom ekki i ljós fyrr en síðar. En í
mörgum tilfellum er fólki þetta miklu ljósara. Veit viðkomandi
þá nákvæmlega hvað á að koma fyrir og reynir jafnvel að
vara við því. Slík hugboð heyra því nánast undir framsýn, það
er að sjá fyrir óorðna atburði. Og stundum gerist þetta hjá
mörgu fólki um svipað leyti, sem sér þá fyrir sér hinn sama
voveiflega atburð. Til dæmis um þetta má nefna, að til eru
mjög margar vel staðfestar spár, sem komu fram hjá ýmsu
fólki beggja megin Atlantshafsins árið 1912, þegar stærsta skip
heimsins, hið fræga Titanic, rakst á ísjaka og fórst með mörg
hundruð manns, enda þótt það væri talið ósökkvandi. En ég
mun ekki fara út í þá sálma hér að þessu sinni, heldur minnast
á atburð nær okkur í tímanum. Á ég hér við morðið á John
Kermedy forseta Bandarikjanna þ. 22. nóvember 1963.
Það er blátt áfram ótrúlegt, hve margir virðast hafa fundið
á sér, að þessi voveiflegi atburður var í nánd. Mun ég nú rekja
hér ýmis dæmi þess.
„ Maður er nefndur John Pendragon. Hann er
j stjörnuspámaður og býr á eynni Mön við
„ , Englandsstrendur. Maður þessi hefur í möre
Fendraírons 1 °
ár birt spádóma um framtíðina, sem hann tel-
ur byggða á gangi himintungla og fæðingarstund hlutaðeigandi
persóna. Og hvort sem menn telja slíkt bábiljur einar eða ekki,
þá verður þvi ekki neitað, að allmargt af því, sem hann hefur
sagt fyrir, hefur rætzt. Að vanda sínum spáði hann haustið
1963 fjrrir komandi ári og birti spár sínar eins og hann var
vanur í enska tímaritinu Fate Magazine. I spá þessari um
heimsviðburði þótti honum örlög Kennedys forseta svo ískyggi-
leg á næstunni, að hann taldi skyldu sína, að skrifa forsetan-
rnn eftirfarandi bréf, sem er dagsett 25. október 1963, eða tæp-
um mánuði áður en hinn vinsæli þjóðhöfðingi var myrtur.