Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 17

Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 17
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 JÓHanna e inarSdÓtt i r 17 Langflestir foreldrarnir nefndu félagslega og tilfinningalega þætti þegar þeir voru spurðir hvað þeim fyndist mikilvægt að börn þeirra lærðu í leikskólanum. Nokkrir töluðu um að jákvæðni og félagsleg færni væru mikilvægustu uppeldisþættirnir. Ein móðir ræddi t.d. um mikilvægi þess að barn hennar lærði að virða náungann og eigur annarra og sagði: „Mér finnst mikilvægt að þau þroskist félagslega til dæmis og bara [læri] að umgangast aðra af virðingu og þess háttar og líka bara umhverfi sitt.“ Ein móðir ræddi um mikilvægi vinanna í leikskólanum og komst svo að orði um son sinn: ,,… svo á hann alveg grilljón og tvo vini og margar kærustur … lífið gæti ekki verið betra.“ Margir nefndu samlíðan og mikilvægi þess að börn gætu sett sig í spor annarra og lærðu að bera virðingu fyrir öðru fólki. Ein móðirin sagði: Náttúrulega samskiptin við annað fólk skipta alveg rosalega miklu máli. Þú veist, þegar þetta er orðið svona, þegar börn eru alltaf í leikskóla eða í hóp. Þú veist, þau eru ekki ein heima hjá sér eins og kannski var hérna í gamla daga. Þá skiptir það náttúru- lega rosalega miklu máli hvernig maður kemur fram við annað fólk og hvernig annað fólk kemur fram við mann. Í svipuðum dúr var umræða í öðrum hópi um félagslegan þátt leikskóladvalarinnar: Móðir I: Er það ekki bara orðið þannig að, ég meina, ef þú ætlar að vera með börnin heima þá einangrast þau, það er enginn heima. Móðir II: Mér finnst bara upp á þroska … Móðir I: Já, líka það. Móðir III: Ég mundi, þó ég væri heima, ég mundi aldrei gera barninu mínu það að vera eitt heima allan daginn þangað til að það færi í skóla. Ég mundi aldrei gera það. Þó að það væri ekki nema hálfur dagurinn; bara læra að leika sér, bera virðingu fyrir öðrum, annarra manna dóti, bara læra að umgangast fólk. Í tengslum við umræðu um að börn lærðu að sýna öðrum virðingu og væntumþykju var einnig rætt um einelti eins og fram kemur í umræðunni hér á eftir. Móðir I: Og, þú veist, þetta að bera virðingu fyrir öðrum. Faðir: Já, já. Móðir II: Geta sett sig í spor annarra. Móðir I: Já. R: Já, þessi félagsþroski? Móðir II: Já, einmitt það, bara eins og þetta með að allir geta lent í einelti og þau líka – að geta hjálpað öðrum við það. Móðir I: Já, akkúrat. Faðir: Ég held að það sé rosalega mikilvægt. Móðir II: Og fá að vera þau sjálf, bara það að kenna þeim að virða sjálf sig líka; að það eru ekki allir eins og [maður] þarf ekkert að vera eins og allir aðrir. R: Einmitt. Móðir I: Og bera virðingu fyrir því ef einhver er öðruvísi, ekki horfa á það að einhver er öðruvísi heldur bara að svona er þessi einstaklingur og ég er svona.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.