Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Blaðsíða 43
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 43
frey Ja B i rg iSdÓtt i r
Í töflunni sést að lítill munur var á meðaltölum hópanna tveggja áður en inngripin
hófust, en báðir gátu svarað um helmingi atriðanna á prófinu rétt. Líkt og áður hækkuðu
skor kennsluhópsins talsvert í kjölfar kennslutímabilsins meðan skor samanburðar-
hópsins héldust svo til óbreytt.
Eins og fyrr voru breytingarnar á meðaltölum hópanna kannaðar frekar með 3 (fyrir-
lögn: 1, 2, 3) x 2 (hópur: kennsluhópur, samanburðarhópur) dreifigreiningu fyrir endur-
teknar mælingar þar sem tekið var tillit til aldurs. Megináhrif fyrirlagnar voru ekki
marktæk, en marktæk samvirkni kom fram á milli fyrirlagnar og hóps. T-próf með
Bonferroni-leiðréttingum sýndu að meðaltal kennsluhópsins hækkaði marktækt á
milli fyrirlagnarinnar sem átti sér stað fyrir inngrip og þeirrar sem gerð var tveimur
vikum á eftir t(9)=2.6, p<0.05, en hélst óbreytt þremur mánuðum síðar. Engar breyt-
ingar urðu á meðaltölum samanburðarhópsins á milli fyrirlagnanna þriggja.
umræða
Í þessari fyrstu athugun var kannað hvort fræðsla um orðhluta og hlutverk þeirra í
orðmyndun myndi auka hæfni barna í fyrsta og öðrum bekk í grunnskóla til þess að
álykta um merkingu orða. Niðurstöðurnar bentu til þess að svo sé. Áður en kennslan
hófst gátu börnin í báðum hópum borið kennsl á um það bil helming raunorðanna að
meðaltali og skilgreint á milli 20 og 25% orðanna á bullorðaprófinu. Eftir að kennslu-
tímabilinu lauk gátu aftur á móti börnin sem hlotið höfðu kennslu um orðhluta skil-
greint 64% bullorðanna og báru kennsl á 68% raunorðanna. Samanburðarhópurinn
tók engum framförum við lausn hvorugs prófsins. Þetta eru mjög uppörvandi niður-
stöður og sýna að þrátt fyrir að skilningur ungra barna á orðmyndun sé aðeins á frum-
stigi er mögulegt að auka þann skilning með kennslu um orðhluta og hafa þannig
áhrif á getu þeirra til þess að finna út hvað ókunn orð merkja.
Svipað var uppi á teningnum þegar athugað var hversu lengi áhrifa inngrip-
anna gætti. Þremur mánuðum eftir að kennslunni lauk (fyrirlögn 3) var frammistaða
kennsluhópsins í báðum orðskilningsprófunum marktækt betri en hún var áður en
kennslutímabilið hófst, en meðaltal samanburðarhópsins hélst nánast óbreytt meðan
á rannsókninni stóð. Þess ber þó að geta að börnin í samanburðarhópnum tóku
óvæntum framförum við skilgreiningu bullorða á milli fyrirlagnar 2 og 3, þó enn væri
frammistaða þeirra mun lakari en frammistaða kennsluhópsins. Þau gátu nú skil-
greint tæplega fimm orð í stað þeirra tveggja sem þau gátu skilgreint í fyrirlögnunum
á undan. Þessa hækkun á meðtaltali samanburðarhópsins má trúlega að hluta rekja til
endurtekningaráhrifa, en einnig er mögulegt að börnin hafi rætt prófið sín á milli og
jafnvel við kennarann sinn.
Í fyrstu athugun var þátttakendum kennt í litlum hópum við staðlaðar aðstæður
utan kennslustofunnar. Lokatakmarkið hlýtur þó ætíð að vera að kennsla skili
árangri, ekki aðeins þegar hún fer fram við slíkar kringumstæður, heldur einnig þegar
hún er þáttur í venjulegu bekkjarstarfi. Megintilgangur seinni hluta rannsóknarinnar
(athugun 2) var að kanna árangur inngripanna þegar þau eru notuð við kennslu heils
bekkjar og felld að daglegu kennsluskipulagi.