Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Blaðsíða 19
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010
JÓHanna e inarSdÓtt i r
19
Í öðrum hópi var einnig rætt um að börnin ættu að fá að ráða sér meira sjálf og varast
ætti ofskipulag. Ein móðirin sagði t.d.: „Mér hefur fundist svona á leikskólum vera
kannski aðeins of mikið um að börnunum sé stýrt í því hvað þau eiga að vera að gera.
Mér finnst svona stundum einum of mikið skipulag.“ Önnur móðir var á sama máli
og vildi hafa meiri frjálsan leik. Hún sagði: „Mér finnst leikskólinn svoldið stífur. Þetta
er leikskóli. … Mér finnst þetta mætti vera meiri leikskóli. Þær eru náttúrulega orðnar
hámenntaðar og vilja hafa þetta svona … í föstu formi. Mér finnst það stundum einum
of … Það mætti vera aðeins lausara.“ Sama móðir sagðist hafa fengið skömm í hattinn
frá starfsfólki leikskólans þegar hún kom með barnið seint í leikskólann vegna þess að
skipulagið var það stíft að það hentaði ekki að börnin kæmu á misjöfnum tíma.
Ekki höfðu allir foreldrarnir þessa skoðun. Ein móðir hélt því t.d. fram að börn, sem
væru vön ákveðnu skipulagi og stífu prógrammi í leikskólanum, væru betur undirbúin
fyrir grunnskólann en þau sem væru í leikskóla þar sem væri meira frelsi. Annað for-
eldri í þeim hópi svaraði því hins vegar til að börn þyrftu bæði reglur og skipulag en
líka leik og frjálsræði. „Ef þau fá bara að gera það sem þau vilja allan daginn þá verða
þau leið. Sum börn eru í leikskólanum átta eða níu tíma á dag svo þau þurfa að hafa
eitthvað skipulag.“
Í nokkrum hópum var rætt um að auka mætti skipulagt starf þegar börnin væru
orðin eldri. Í einum leikskólanna lýstu margir foreldrarnir ánægju sinni með að vett-
vangsferðir og skipulögð verkefni höfðu aukist mjög þetta síðasta ár barnanna í leik-
skólanum eins og fram kemur í þessari umræðu:
Móðir: Mér finnst þau dugleg svona að fara með þau á svona alls konar söfn … Þau
fóru oft á Ásmundarsafnið og náttúrulega búin að fara í Alþingishúsið og … Sinfóníu-
hljómsveitina og það finnst mér allt mjög gott.
R: Já, vettvangsferðirnar. Þau hafa verið ánægð með það?
Móðir: Já, mjög, og svona fara í heimsókn á Sóltúnsheimilið og heimsækja gamla
fólkið og svona.
R: Já, einmitt.
Faðir: Landspítalann, þau fóru þangað líka. … Svo líka þessi verkefni eins og þarna
með hverfisvitundina. Þau festu upp … öll húsin sem þau hafa teiknað, eru með kort
uppi á vegg. Fóru og tóku myndir af öllum húsunum. Þau þekkja hvert hús fyrir
sig.
Foreldrar í öðrum leikskóla nefndu einnig vettvangsferðir og skipulagt starf með elstu
börnunum og fannst að það mætti gera meira af því að fara með börnin út fyrir leik-
skólann eins og fram kemur í þessari umræðu úr einum hópnum:
Móðir I: Mér finnst það hefði kannski mátt gera meira af því að taka þau, þessa
krakka, sem sagt, og fara með þau. Fara bara með þau á Þjóðminjasafnið eða svona
vettvangsferðir.
Móðir II: Já, svona aðeins meira krefjandi verkefni?
Móðir I: Þau eru sum hver búin að vera í fjögur og hálft ár.