Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Síða 21
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010
JÓHanna e inarSdÓtt i r
21
upplýsingar um félaga barnanna og við hverja þau lékju sér í leikskólanum til þess að
hægt væri að rækta þau tengsl áfram fyrir utan leikskólann.
Eina kannski, sem maður hefði viljað svona á þessum eldri deildum, er kannski að
vita svona meira við hvern barnið leikur og á [sem] félaga … Því að hann er kominn
á það stig núna í vetur að það eru einn eða tveir ákveðnir [sem hann vill leika við] og
[hann]vildi kannski fara að heimsækja þá og leika við og svoleiðis.
Þegar foreldrarnir voru spurðir hvort þeir hefðu áhuga á að taka meiri þátt í leikskóla-
starfinu og hafa meira samstarf við leikskólann töldu fæstir sig hafa tíma til þess eins
og hér kemur fram:
R: Mynduð þið hafa áhuga á því að taka meiri þátt í leikskólastarfinu?
Móðir I: Mér finnst voða fínt að þau séu í leikskólanum og þau njóti þess til hins
ítrasta en svo vil ég helst bara fá barnið mitt og gera eitthvað með því sjálf.
Foreldri II: Nei, nei. Vandamálið er að það er ætlast til þess að þú sért átta til fjögur
eða níu til fimm í vinnunni þinni.
R. Já.
Móðir II: … og þú hefur kannski rosalegan áhuga á að vera bæði með í leikskólastarf-
inu og í skólanum sem grunnskólabarnið þitt er. En þú getur ekki verið á þremur
stöðum í einu. Mér hefur fundist álagið vera allt of mikið rétt fyrir jólin og á vorin.
R: Já.
Móðir II: Það er frekar að mér fyndist að maður gæti gert þetta, sko, meira á sínum
forsendum … að maður gæti komið inn með eitthvað svona framlag …
Flestum foreldrunum fannst fráleitt að þeir færu að skipta sér af innra starfi leik-
skólans þegar þeir voru spurðir að því hvort þeir hefðu áhuga á að hafa meiri áhrif
á starfsemina. Meirihluti foreldranna sagðist treysta starfsfólkinu fyrir starfinu í leik-
skólanum og vildi ekkert skipta sér af því. Einn faðir sagði t.d.: „Mér finnst ég leggja
bara faglegt starf í hendurnar, svolítið bara, á leikskólakennurunum.“ Í einum hópnum
fór þessi umræða fram:
Faðir: Allt innra starf er náttúrulega gert af fagfólki og maður getur örugglega haft
mismunandi skoðun á því, sko, án þess að í raun og veru vita alveg hvað maður er
að tala um.
Móðir: Ég held það.
Faðir: Hljóti að vera tekið mið af heildinni, sem sagt ekki út frá einu barni.
Móðir: Já, já, akkúrat.
Faðir: Ekki út frá einu barni. Það er náttúrulega þetta fólk sem er hæfast til þess þannig
að ég hef ekki undan neinu að kvarta varðandi það. Ég get ekki séð að ég geti bætt
þetta nokkuð. Ég get ekki ímyndað mér það.
…
Móðir: Ef allir fengju að hafa skoðun á því. Allir þessir foreldrar – tvö hundruð for-
eldrar – hvað yrði gert, þú veist? Það yrði svo misjafnt hvað hver og einn vildi leggja
áherslu á. Þá getur hann líka valið um leikskóla: Ef þetta hentar þér ekki þá getur þú
valið að fara eitthvað annað.