Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Síða 62
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/201062
faglegt SJálfStæði grUnnSKÓla
89% þessara skólastjóra telja að kennarar séu sammála skólastefnu þess sveitarfélags
sem þeir starfa hjá eða séu hlutlausir gagnvart henni. Einungis 11% þeirra telja kennara
vera ósammála skólastefnunni. Þá telja 52% skólastjóra að kennarar starfi að miklu
leyti í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins. Við skoðun á marktækum tengslum
svara skólastjóranna við fyrrnefnda bakgrunnsþætti kom í ljós neikvæð fylgni milli
spurningarinnar „hversu mikla hlutdeild áttu kennarar við þinn skóla í stefnumót-
uninni?“ og stærðar skóla (rs(92)= –0,249, p<0,05), þ.e. með aukinni stærð skóla telja
skólastjórar frekar að hlutdeild kennara fari minnkandi. Þá kom fram marktækur
munur í svörum skólastjóranna eftir landshlutum við spurningunni „að hve miklu
leyti telur þú að kennarar skólans séu sammála skólastefnu sveitarfélagsins?“ (χ²
(4, 87)=11,42, p <0,05), þ.e. þeir sem starfa í Reykjavík telja frekar en þeir sem starfa
á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni að kennarar séu ósammála skólastefnu
sveitarfélagsins.
Tafla 5 sýnir mat skólastjóranna á áhrifum skólastefnu sveitarfélaga á skólastarf.
Tafla 5. Áhrif skólastefnu á skólastarf
Spurningar: Lítið/ Nokkuð/ Mikið/
Minnka Svipað Auka
Telur þú að skólastefna sveitarfélagsins stuðli að bættu
skólastarfi? 11% 36% 53%
Telur þú að eigi að auka eða minnka áhrif sveitarfélagsins/
skólanefndar á skólastarf? 20% 71% 9%
Eins og fram kemur í töflu 5 telur meirihluti skólastjóra (53%) að skólastefna sveitar-
félaga stuðli að bættu skólastarfi. Stór hluti skólastjóranna er einnig þeirrar skoðunar
að það eigi ekki að auka áhrif sveitarfélaga á skólastarf. Við athugun á marktækum
tengslum við bakgrunnsþætti kom fram neikvæð fylgni milli spurningarinnar „telur
þú að eigi að auka eða minnka áhrif sveitarfélagsins/skólanefndar á skólastarf?“ og
stærðar skóla (rs(132)= –0,288, p<0,01), þ.e. með aukinni stærð skóla telja skólastjórar
að áhrif sveitarfélags/skólanefndar eigi að vera minni. Þá kom einnig fram marktækur
munur í svörum skólastjóranna við sömu spurningu eftir landshlutum, þ.e. þeir sem
starfa á höfuðborgarsvæðinu telja frekar en þeir sem starfa í Reykjavík eða á lands-
byggðinni að minnka eigi áhrif skólanefnda á skólastarf (χ² (4, 129)=9,89, p<0,05).
Í töflu 6 er að finna upplýsingar um samskipti skólastjóra við skólanefnd og skóla-
skrifstofu.
Tafla 6. Samskipti skólastjóra við skólanefnd og skólaskrifstofu
Spurningar: Lítil Nokkur Mikil
Hversu mikil samskipti hefur þú við skólanefnd? 37% 35% 28%
Hversu mikil samskipti hefur þú við skólaskrifstofu? 22% 31% 47%
Eins og fram kemur í töflu 6 eru samskipti skólastjóra við skólanefndir ekki mikil. Um
28% skólastjóra segjast eiga mikil samskipti við þær. Mun stærri hópur skólastjóra