Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 196
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010196
viðHorf
Starfsfólk var tilbúið að leggja á sig umtalsverða vinnu vegna þess að Bolognaferlið
hefur skýr og augljós markmið sem gefa mikilvægan ávinning, ekki síst fyrir litlar
menntastofnanir sem eru háðar samvinnu við aðrar menntastofnanir innanlands og
erlendis. Á sama hátt er ávinningurinn ljós almennt fyrir menntakerfi smáþjóðar eins
og Íslendinga. Bolognaviðmiðin eru að ryðja sér til rúms í öllu alþjóðlegu mennta-
samstarfi innan Evrópu þar sem ECTS-einingakerfið og fleiri þættir Bolognaferlisins
eru orðnir að ríkjandi stöðlum. Sem dæmi má nefna Norðurlandasamstarf norrænna
landbúnaðar-, skógræktar- og dýralæknaháskóla (e. NOVA university network)
sem LbhÍ er í forystu fyrir um þessar mundir. Öll sameiginleg meistara- og doktors-
námskeið þessara skóla taka mið af Bolognaviðmiðum og ECTS-einingareglum.
Bolognaviðmiðin hafa leitt til þess að kennslusvið LbhÍ hefur endurskipulagt verk-
ferla við gerð námskeiðslýsinga, útbúin hafa verið leiðbeinandi form fyrir kennara
og námsbrautarstjóra og haldin námskeið um útfyllingu þeirra. Alltaf eru þó einhver
dæmi um kennara sem eru seinir til og tregustu tíu prósentunum reynist erfitt að
tileinka sér nýjungar. Í þessu starfi höfum við lítið nýtt The Bologna Handbook sem
þykir óaðgengileg og mikil að vöxtum (Froment, Kohler, Purser og Wilson, 2006), en
ECTS Users' Guide (European Communities, 2009) hefur nýst vel, auk fyrirmynda
sem Bolognafulltrúi HÍ hefur bent okkur á meðal erlendra háskóla. Þegar LbhÍ fékk
tilkynningu um svokallað DS label (viðurkenningu á skírteinisviðauka) frá Evrópu-
sambandinu skömmu áður en þetta er ritað kom þó fram athugasemd um að skírteinis-
viðaukar LbhÍ þættu óþarflega nákvæmir og þá mætti stytta.
Bolognaviðmiðin hjálpa til við að skerpa sýn á inntak náms. Þau fela í sér tækifæri
til að yfirfara skipulega hvort öll hæfniviðmið námsbrautar séu fyrir hendi einhvers
staðar í námskeiðum brautar og einnig hvort einstökum námskeiðum sé hugsanlega
ofaukið eða að þætti kunni að vanta til að uppfylla hæfniviðmið brautar. Það er einnig
álit starfsmanna kennslusviðs LbhÍ að sameiginlegur Bolognavinnuhópur á vegum
íslensku háskólanna hafi verið gagnlegur og viðfangsefnið sé dæmi um svið sem
eigi að vera samstarfsverkefni skólanna. Niðurstaðan er sú að Bolognaferlið hefur
haft margháttuð áhrif á vinnulag og skipulag kennsluhátta í Landbúnaðarháskóla
Íslands, sérstaklega hvað varðar framsetningu upplýsinga um námið, mat á vinnu-
álagi nemenda í einstökum námskeiðum og innihald námsins.