Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Blaðsíða 205
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010 205
SIGRúN MAGNúSdÓttIR oG
SIGuRðuR kRIStINSSoN
Bolognaferlið og Háskólinn á Akureyri
Nú er langt liðið á árið 2010 og því þarft að spyrja hvaða áhrif Bolognaferlið hafi haft á
Háskólann á Akureyri (HA). Hefur það gengið eftir sem stefnt var að? Fyrsta verkefnið
innan HA sem heyrir undir Bolognaferlið var útgáfa ritsins University of Akureyri
Information and ECTS Guide árið 1997 (Háskólinn á Akureyri, 1997), tveimur árum
áður en Bolognaferlið hófst ef ganga á út frá ártalinu 1999. Útgáfa ritsins þýddi þó ekki
að ECTS-einingar giltu upp frá því einvörðungu því það varð ekki fyrr en árið 2008.
Fram að þeim tíma voru einingar námskeiða gefnar upp samkvæmt báðum kerfum.
Það var svo árið 2005 sem HA hóf að gefa út skírteinisviðauka með brautskráningar-
skjölum nemenda líkt og aðrir háskólar gerðu.
Þriggja þrepa skipulagið í náminu, þ.e. skipting náms í þriggja til fjögurra ára bakka-
lárnám og tveggja ára meistaranám, var þegar til staðar í HA, þ.e. að því undanskildu
að háskólinn hefur ekki heimild til þess að veita doktorsgráður. Nemendaskipti hafa
um árabil verið heldur óhagstæð HA þannig að fleiri nemendur hafa komið þangað
til náms en sem nemur fjölda þeirra sem fara í skiptinám erlendis. Kennaraskipti hafa
verið á báða bóga en þó ekki síður á þann veg að kennarar HA fari í skiptikennslu
erlendis. Talsvert hefur verið um að erlendir gestakennarar komi að kennslu við HA
og hefur Bolognaferlið auðveldað samskipti og skipulag í því efni.
Áhrif Bolognaferlisins á stjórnun innan HA hafa verið umtalsverð. Ábending í
stofnanaúttekt á HA sem IMG-ráðgjöf stóð að í umboði menntamálaráðuneytis árið
2005 (IMG ráðgjöf, 2005) og ný lög um háskóla 2006 urðu til þess að farið var að gefa
gæðamálum meiri gaum innan háskólans og sérstökum starfsmanni var falið að
gegna starfi gæðastjóra. Ábyrgð starfsmanna á gæðum var skilgreind og gæðaráði
komið upp. Gæðaráð skipa rektor sem er formaður, forsetar fræðasviða, gæðastjóri,
framkvæmdastjóri, forstöðumaður kennslusviðs, einn fulltrúi starfsmanna og annar
fulltrúi nemenda. Hlutverk gæðaráðs var skilgreint en það hittist að jafnaði einu sinni
í mánuði yfir vetrartímann.
Hefur Háskólanum á Akureyri tekist að nýta sér einhver skref Bolognaferlisins í gæðastarfi
innan háskólans – eða hafa einhver atriði verið til trafala? Þegar litið er til baka eru viður-
kenningarferlið og innleiðing viðmiða um æðri menntun og prófgráður langstærstu
einstöku verkefnin sem unnið hefur verið að í tengslum við Bolognaferlið í HA á undan-
förnum árum og segja má að innleiðing viðmiðanna standi enn. Bæði verkefnin hafa
verið unnin á vegum og í umboði gæðaráðs. Viðurkenningarferlinu var stýrt af stýri-
hópi sem rektor skipaði ásamt fulltrúum fræðasviðanna. HA sótti um fyrir seinni
Uppeldi og menntun
19. árgangur 1.–2. hefti, 2010