Uppeldi og menntun - 01.01.2010, Page 218
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 19(1–2)/2010218
le iðBe in ingar fyr i r gre inaHöfUnda
Mikilvæg atriði varðandi skil handrita:
• Lengd handrita skal að jafnaði vera 15–25 blaðsíður.
• Handrit skulu vera með 12 pt. letri (Times New Roman) og línubili 1,5.
• Einfalt orðabil skal vera á eftir punkti.
• Nota skal íslenskar gæsalappir.
• Á forsíðu skal koma fram heiti greinar og nafn höfundar.
• Á eftir forsíðu skal vera u.þ.b. 100–150 orða útdráttur á íslensku.
• Á þriðju síðu handrits eða við upphaf greinarinnar sjálfrar skal heiti greinarinnar
einnig koma fram, án nafns höfundar.
• Heiti greinarinnar á ensku og u.þ.b. 600 orða útdráttur á ensku skal vera á eftir
heimildaskrá.
• Myndir og töflur skulu vera með sem einföldustu sniði og á sérsíðum aftast í
handriti en merkt við í handritinu hvar þær skulu staðsettar (t.d. tafla 1 hér).
• Upplýsingar um höfunda á íslensku og ensku skulu fylgja handriti, u.þ.b. 50 orð
á hvoru máli. Þar skal koma fram staða og menntun höfundar ásamt rannsóknar-
sviði og netfangi.
• Greinar skulu vera vel yfirfarnar með tilliti til málfars og framsetningar.
Viðmiðanir við ritrýningu
Greinarhöfundum er bent á að við ritrýningu greina er einnig lögð áhersla á eftir-
farandi þætti:
• Útdráttur sé í samræmi við innihald.
• Titill greinar sé lýsandi.
• Uppbygging greinarinnar sé skilmerkileg.
• Efnistökum, tilgangi og mikilvægi viðfangsefnisins sé lýst í inngangi.
• Grein sé gerð fyrir fræðilegu samhengi og nýjustu rannsóknum, mikilvægi rann-
sóknarefnisins, tilgangi rannsóknar, rannsóknarspurningum, rannsóknarsniði,
rannsóknaraðferðum og úrvinnslu gagna.
• Yfirlitsgreinar byggi á víðtækri skoðun á fræðilegum skrifum og rannsóknum á
viðkomandi efni.
• Niðurstöður séu settar skýrt fram, studdar gögnum og rannsóknarspurningunum
svarað.
• Ályktanir séu studdar gögnunum og fræðilegri umræðu.
• Greinin bæti við skilning og þekkingu á sviðinu og leggi af mörkum til rannsókna,
starfsvettvangsins eða stefnumörkunar á sviði uppeldis- og menntamála.
• Vandað sé til frágangs og málfars.