Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 89
STÓRFYRIRTÆKI OG STRÍÐSGRÓÐI
Áður en við rýnum í afkomu
fyrirtækjanna einstök ár skulum
við skoða afkomu stórfyrirtækj-
anna í heild. Hverjar voru heild-
artekjurnar, meðaltekjurnar og
hæstu tekjur? Tafla 1 hér á eftir
sýnir þetta og fleira. Tekið skal
fram að hér í greininni er oft
talað um félög (þ.e. hlutafélög
og samvinnufélög) og nota ég
það um öll þau fyrirtæki, versl-
anir og þjónustustarfsemi sem
hér eru til umræðu.
Við sjáum að árin 1940 og
1944 voru samanlagðar skatt-
skyldar tekjur félaganna mjög
áþekkar eða um 50 milljónir.
En ef við lítum á fjölda þeirra
félaga sem náðu tekjumarkinu
1940 og 1944 þá sjáum við að
samkeppnin var miklu meiri
seinna árið, fjöldi þeirra rúm-
lega tvöfaldaðist. Af þessu leiddi
að meðaltalstekjur hvers félags
lækkuðu úr tæpri einni milljón
í rúmar 400 þúsund krónur.
Möguleikar félaganna til að
komast í gríðarmiklar tekjur
minnkuðu um leið og þeim
fjölgaði; tekjuhæsta félagið fór
úr rúmum 12 milljónum 1940 í
hálfa sjöundu milljón 1944. Um
var að ræða útgerðarfélagið
Kveldúlf. En það er samt eftir-
tektarvert að tekjuhæsta félagið
bar bæði árin úr býtum u.ji.b.
tólf sinnum meira en meðal-
talið.
Af tölum ársins 1948 að
dæma eru fjárráðin þrengri en
áður. Heildartekjur voru um
það bil helmingi lægri en árin
áður (tæpar 27 milljónir á móti
tæpum 50 milljónum). Þrátt
fyrir þetta voru félögin lítið
færri en 1944 (15% fækkun).
Um leið virðast möguleikarn-
ir hafa minnkað á því að hafa
miklu meiri tekjur en meðaltal-
ið gefur til kynna, því tekju-
hæsta fyrirtækið (SÍS) liafði
ekki nema rúmlega sex sinnum
hærri tekjur en „meðalfyrirtæk-
ið.“ Benda má á að 1947 fóru
síðustu hermennirnir úr
Reykjavík og hefur án efa mun-
að mikið um að missa viðskipt-
AFKOMA STÓR-
FYRIRTÆKJANNA í
HEILD 1940, 1944,
1948 OG 1952
Möguleikar félaganna
til að komast í gríð-
armiklar tekjur minnk-
uðu um leið og þeim
fjölgaði.
Skattskyldar tekjur félaga í Reykjavík, sem höfðu 112.950 kr. eða meira í tekj-
ur árin 1940, 1944, 1948 og 1952 (á verðlagi ársins 1952).
1940 1944 1948 1952
Samanlagðar tekjur 52.296.687 49.667.394 26.926.805 12.883.639
Meðaltekjur á félag 986.730 417.373 266.602 226.029
Hæstu tekjur félags 12.289.756 6.542.596 1.726.444 800.000
Fjöldi félaganna 53 119 101 57
Heimildir: Skráyfir skatta og útsvör (í Reykjavík)... 1941. SkattskrárReykja-
víkur 1945, 1949 og 1953. Stjtíð. 1941 A, 12, 7-8; 1942 A, 26-7. - Jón Sigurðs-
son: „Verðbólga á íslandi 1914-1974“, fylgitafla. Fjármálatíðindi 21 (1974).
in við þá.8
Vera má að skýringarnar séu
fleiri, til dæmis sú að margra
ára reynsla af stríðsgróða-
skattinum hafi hvatt eigendur
fýrirtækja til að grípa til þess
ráðs að skipta fyrirtækjunum
niður í smærri einingar til að
forðast að fá á sig mjög mikla
skatta. Hér hef ég í huga Ó.
Johnson & Kaaber sem rak
kaffibrennslu og kaffibætisverk-
smiðju ásamt almennri um-
boðs- og heildverslun. Árið
1945 voru brennslan, verk-
smiðjan og verslunin aðskilin
og gerð að þremur sjálfstæðum
fýrirtækjum.9
Árið 1952 er afkoman enn
erfiðari hjá fyrirtækjunum.
Heildartekjur liafa minnkað um
helming frá því fjórum árum
áður, 1948, og fjöldi fýrirtækja
sem náðu tekjumarkinu er um
45% færri en 1948. Meðaltekjur
hvers félags eru 18% lægri en
1948 og möguleikar á stórgróða
orðnir litlir, því tekjuhæsta
fyrirtækið (SÍS aftur) hafði ekki
nema rúmlega þrisvar sinnum
hærri tekjur en meðaltalið
sýndi.
Skýringarnar á bágri afkomu
stórfyrirtækjanna 1952 eru sjálf-
sagt af margvíslegum toga og
e.t.v. ólíkar eftir því um hvaða
atvinnugrein er að ræða. En
sem almenna skýringu má
benda á að atvinnuleysi var í
Reykjavík um og eftir 1950, og
mikil verkföll urðu 1952 sem
skertu án efa kaupgetu fólks.10
í framhaldi af þessu almenna
yfirliti verður hér á eftir leitað
svara við þessum spurningum: í
höndum hvaða fýrirtækja í
Reykjavík lenti stríðsgróðinn?
Hvers konar fyrirtæki voru
þetta? Megináhersla verður
lögð á að lýsa livaða starfsemi
stórfyrirtæki Reykjavíkur höfðu
með höndum og einungis er
unnt að drepa á helstu orsakir
fyrir breytingum á hlutfalli ein-
stakra atvinnugreina. Rúmsins
vegna verður því að sleppa ítar-
legum útlistunum og skýring-
um á breytingum meðal hinna
smærri atvinnugreina. Niður-
87