Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 27

Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 27
KLERKAR í KLÍPU Ekki er vitað hvað heilögum Bernhard af Ciairvaux og þessari systur hefur farið á milli, en væntanlega hefur það verið innan siðsemis- marka. ekki annað séð en að þau hafi verið að slíta samvistum og því liafi bú þeirra verið gert upp. Þá voru kvaddir til vitnis nokkrir menn um það hvernig eignum þeirra skyldi skipt og þó sér- staklega hvernig farið skyldi með leigu af jörð Valdísar, Syðri Ey á Skagaströnd.28 Þeir biskupssynir síra Björn Jónsson og sira Magnús Jónsson gerðu báðir formlega samninga við frillur sínar eða forræðismenn þeirra. Síra Björn gaf Steinunni frillu sinni t.d. 100 hundruð í jarðeignum sem renna skyldu til barna þeirra. Síra Magnús bróðir hans gaf Kristínu Vigfús- dóttur frillu sinni sömu fjárupp- hæð.29 Þótt ekki finnist eldri heim- ildir um kaupmála milli frillu og prests en frá síðustu áratug- um 14. aldar er þó líklegt að þessi háttur hafi verið hafður á allt frá því að prestum var bann- að að kvongast, að minnsta kosti ef um efnafólk var að ræða. Ættmenn frillunnar hafa án efa viljað hafa fjármálin á hreinu. Engar heimildir eru til um það hvernig sú athöfn fór fram þegar prestur tók sér frillu en ekki er ólíklegt að það hafi verið einna líkast því er menn festu sér konu áður en hjóna- bandið varð að kirkjulegri stofnun. Það er dálítið kald- hæðnislegt að það skyldi ein- mitt vera innan kirkjunnar sem haldið var í þann forna sið að sambúð karls og konu byggðist eingöngu á veraldlegum grunni og væri að forminu til fyrst og fremst viðskiptasamningur. í þriðju skipan Eilífs erkibisk- ups frá 1327 var hamast gegn prestum sem notuðu embætti sitt til að hygla börnum sínum og frændum.30 Það var að sjálf- sögðu fastur fylgifiskur frillu- halds klerkastéttarinnar, enda höfðu prestar ótal ráð til að sjá fyrir börnum sínum og frillum þegar þeirra sjálfra naut ekki lengur við. Til er erfðaskrá sem síra Halldór Loptsson lét gera fyrir andlát sitt. Eftir að kirkjan og systkini hans eru búin að fá sitt segir að frilla hans Gyða Sal- omonsdóttir fái það sem hann á eftir af brenndu silfri, refil sem hún velur sér og þrjá bestu hestana hans. Ófætt barn henn- ar ef það lifir fær 60 kúgildi í jarðeignum og 30 hundruð í góssi. Auk þess fær Ingiríður dóttir hans eina jörð og silfúr- bolla ásamt fleiru og tvær aðrar dætur, Helga og Cecilia, fá ým- islegt góss og svo fá allar þrjár fyrri gjafir staðfestar.31 Líklegt er að kaugmál- ar hafi verið gerðir milli klerka og frillna þeirra alit frá því að prestum var bannað að kvongast. AF HVERJU LÉTU BISKUPAR FRILLU- HALD AFSKIPTA- LAUST? Af því sem hér liefur verið rakið er ljóst að kirkjan hefur ekki gert alvarlega gangskör að því að útrýma frillulifnaði klerka og kemur þrennt til. í fyrsta lagi hefði þurft harðar og víðtækar aðgerðir sem án efa hefðu vak- ið mikla andstöðu og óróa inn- an kirkjunnar. í öðru lagi voru sumir biskupanna allbreyskir í þessum efnum og áttu því mis- gott með að beita hörðum að- gerðum gegn frillulífi klerka sinna. í þriðja og síðasta lagi höfðu kirkjuhöfðingjarnir veru- legar tekjur af barneignarbrot- um undirmanna sinna þannig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.