Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 65
I
landshlutamunurinn ef gætt er
að konum á aldrinum 25-29
ára. Á Suðurlandi hafa 72%
þeirra aldrei gifst, á Norð-
austurlandi aðeins 48%.
Tölurnar þær arna tala býsna
skýru máli. Raunar held ég að
hjúskapartíðni valinna aldurs-
flokka sé næmasti mælikvarð-
inn, sem okkur er tiltækur, á at-
vinnuástand sveitasamfélagsins.
Á þann kvarða metið hafði tals-
vert harðnað á dalnum frá
manntalinu 1850 því að fleira
fólk um þrítugt hafði verið gift
þá en 1860. En þessi samdráttur
í hjúskapartækifærum kom
skýrar fram á Suðurlandi en á
Norðausturlandi. Landshluta-
munurinn hafði að sönnu verið
mikill 1850, en þó aukist enn á
næsta áratug.
Um 1860 gerðist árferði
harðara en verið hafði um
■skeið, og biðu harðbýlar sveitir
mikinn hnekki, ekki síst á Norð-
austurlandi, en fólki fjölgaði við
sjávarsíðuna. Manntalið 1870
sýnir merki landþrengsla og at-
vinnubrests í vaxandi meðal-
stærð heimila, og á sama hátt
fjölgar enn ógiftu fólki í aldurs-
flokkunum um þrítugt, þó að
manntalsskýrslan geri saman-
burð örðugan með því að nota
aðra aldursflokkun (26-30 ára
og 31-35 ára í stað 25-29 ög
30-34). Á Norðausturfandi, þar
sem fólksfjölgun hafði verið svo
ör um langt skeið, fækkaði íbú-
um nokkuð þennan áratug.
Mætti nú vænta þess að einmitt
þar hefði ungt fólk þurft að
fresta hjúskap og heimilisstofn-
un. En það gerist ekki til neinna
muna. Hjúskaparhlutföll
lækka öllu meira á Suðurlandi,
þar sem fólksfjölgun yfir lands-
meðaltali bendir þó á bærilegt
atvinnuástand. Þarna virðist
landshlutamunurinn á hjúskap-
araldri vera með nokkrum
hætti orðinn menningarbund-
inn. Á Norðausturlandi, þar sem
eldri kynslóðin hefur alist upp
við batnandi hag og rífleg tæki-
færi til að stofna heimili, er
Talnaskrá: Hlutfall ógiftsfólks í völdum aldursflokkum 1850-1890
Ar 1850 1855 1860 1870 1880 1890
Konur, 25-29 ára ísland .... 54 57 57 61 67 63
Norðausturland .... 49 48 48 47 58 50
Suðurland .... 64 72 72 73 81 77
Karlar, 25-29 ára ísland .... 58 67 67 65 72 70 Landshlutamunurinn á hjúskaparaldri með
Norðausturland .... 49 59 59 58 64 59 nokkrum hætti menn-
Suðurland .... 64 75 75 79 86 79 ingarbundinn.
Konur, 30-34 ára ísland .... 34 35 40 41 47 46
Norðausturland .... 28 26 31 30 36 38
Suðurland .... 33 33 42 45 45 45
Karlar, 30-34 ára ísland .... 32 32 39 39 46 45
Norðausturland .... 30 24 32 32 41 40
Suðurland .... 44 48 47 47 57 57
Ath. að aldursflokkarnir 1870 eru 26-30 ára og 31-35 ára.
Norðausturland: Norður-Múlasýsla og Þingeyjarsýslur báðar.
Suðurland: Árnessýsla, Rangárvallasýsla og Skaftafellssýslur, án Vestmanna-
eyja.
63