Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 38

Ný saga - 01.01.1989, Blaðsíða 38
Már Jónsson dæmið er eiður Hallveigar Nik- ulásdóttur að Þingskálum 26. september 1597: „Til þess legg- ur þú hönd á helga bók og svo skýtur þú þínu máli til Guðs að þú hefur ekkert líkamlegt sambland haft við nokkurn mann hvorki lífs né dauðan á þinni ævi annan en við Sigurð Guðnason og hann er svo sann- ur faðir að þessum þínum syni Jóni sem þú ert holdleg móðir og að svo stöfuðum eiði sé þér Guð hollur sem þú satt segir, gramur ef þú lýgur.“ Eiðarnir líkjast hverjir öðrum, eru ýmist í fýrstu eða annarri persónu og nefna nafn föður og barns.8 Vegna Stóradóms hófu yfirvöld að ganga fast eftir því að konur lýstu feður að börnum sínum. KONUR URÐU AÐ FEÐRA Höfundar Stóradóms frá 1564 gerðu ekki ráð íyrir því að nokkur vandi væri að feðra börn sem komu undir og fædd- ust utan hjónabands. Þeir kröfð- ust þess eins að brotin sann- prófuðust með opinberum verkum, skilríkum vitnum eða „viljanlegri og lostugri óneyddri meðkenning og við- göngu“ foreldranna.9 Þess verð- ur ekki vart að hætta hafi verið talin á því að kona kynni að neita að feðra barn sitt eða lýst- ur faðir að synja áburði móður- innar. Ákvæði Kristniréttar Árna Þorlákssonar frá 1275 hefur þótt duga: „Sá skal faðir vera að barni sem móðir segir á hendur, nema hann færist und- an með lýrittareiði ef það sýnist biskupi eða hans umboðs- manni réttlega vera mega með skynsamra manna ráði.“ Léki grunur á því að náinn skyldleiki eða mægðir væru með manni og móður barnsins varð hann að synja fyrir með tylftareiði. Væri maðurinn dauður átti það að standa sem móðir sagði á sæng og bar yfirsetukonum að sanna það með henni. Konur sem alls ekki vildu segja til fað- ernis voru sekar biskupi um þrjár merkur, en barnið átti að fylgja móður og taka rétt eftir móðurafa sínum. í kaþólskri tíð gátu konur því komist upp með að lýsa ekki föður.10 Róttækasta breytingin sem Stóridómur hafði í för með sér var að fólk sem var náið að skyldleika eða mægðum og eignaðist börn átti að missa lífið. Fyrir vikið hófu yfirvöld að ganga fast eftir því að konur lýstu feður að börnum sínum og hert var á viðurlögum við því að feðra ekki börn. Á alþingi árið 1576 var sektarákvæði Kristniréttar ítrekað og því bætt við að hefðu konur ekki fé skyldu þær dæmast „útlægar af héraðinu, þar til sannprófast um hver barnið á með þeim.“ Tveimur árum síðar ályktuðu lögmenn og lögrétta að „þær konur sem ekki vilja segja til feðra barna sinna séu réttteknar undir þvílíka refsing sem dóm- ur dæmir eftir atvikum hverja kynning þær hafa hver í sínu héraði." Hnykkt var á útlegð- arákvæðinu á alþingi 1603 og ákveðið að konur skyldu fara úr fjórðungi, en „hérað“ í sam- þykktinni frá 1575 gat jafnt átt við sýslu og fjórðung. Þær sem ekki treystu sér til þess að fara vegna veikinda eða annarra for- falla skyldu hýddar „hvert ár svo lengi sem þær lifa.“n Undir lok aldarinnar voru af- skipti kirkjunnar skilgreind. Oddur biskup Einarsson tók frumkvæðið árið 1594. Á al- þingi baðst hann dóms á nokkr- um greinum, meðal annars um þá konu „sem ekki vill segja til faðernis." Leikmenn og prestar samþykktu það sem hann lagði til. Þremurárum síðar var sams- konar ályktun gerð á presta- stefnu Hólabiskupsdæmis. Ákvæði kennimanna voru á þá leið að neitaði kona að segja til faðernis átti sóknarprestur að áminna hana þrisvar að segja sannleikann. Héldi hún fast við neitunina næsta hálfa árið átti prestur að leita ráða hjá prófasti og biskupi og síðan bannsetja hana af predikunarstóli. Sæi hún enn ekki að sér skyldi ver- aldlegt yfirvald taka til hend- inni, sekta konuna eða hýða fyr- ir þvermóðskuna og reka hana úr fjórðungi.12 Með þessum samþykktum var kornið á fót tvöföldu eftirliti með feðrun barna. Væri kona ekki fús til að nefna föður áttu prestar að gera hvað þeir gátu með áminningum og banni, en vísa málinu til sýslumanna yrði þeim ekki ágengt. Sýslumenn máttu hýða þessar konur og flæma þær í burt. Á fyrsta aldar- fjórðungi 17. aldar voru síðan boðuð nýmæli og enn harðari viðurlög. ÞÓRDÍSARMÁL OG PRINSINS BRÉF Vorið 1608 hófust málaferli sem líklegt er að hafi vakið at- hygli um allt land.13 í apríl sór Þórdís Halldórsdóttir að Sól- heimum í Sæmundarhlíð eið fyrir samræði við alla karlmenn lifandi og dauða. Slíkir eiðar voru alvanalegir á þessum árum þegar stúlkur urðu fyrir orð- rómi um að þær ættu vingott við karla. Frá árslokum 1599 til ársbyrjunar 1612 sóru til að mynda tíu stúlkur í Rangárvalla- sýslu eitthvað á þá leið „að ég hef aldrei líkamlega lostasemi drýgt við nokkurn mann, hvorki lífs né dauðan."14 Þórdís varð hins vegar uppvís að meinsæri þegar hún fæddi barn fimm mánuðum eftir eiðinn og glæp- ur hennar varð ennþá meiri þegar hún neitaði að feðra barnið. Þess í stað fullyrti hún að hún hefði aldrei verið við karlmann kennd. Þá þegar hef- ur leikið grunur á því að mágur hennar Tómas Böðvarsson bóndi að Sólheimum ætti barnið. Jón lögmaður Sigurðs- son hafði Þórdísi með sér á al- þingi 1609. Þar voru menn ráðalausir og treystu sér ekki til að fallast á boð Tómasar um að sverja tylftareið fyrir barnið. Herluf Daa höfuðsmaður vísaði málinu aftur til héraðs og lofaði að útvega konungsbréf um mál sem þessi. Á alþingi sumarið 1612 gaf hann út bréf í eigin 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.