Íslenzk tunga - 01.01.1965, Side 11
NÖFNIN, SEM ENDA Á -STAÐIR 9
golvslad ‘staður fyrir hesjugólf (mýrar- eða vetrarhesja)’, gárdstad
‘staSur, þar sem túngarSur hefur veriS’, hyllstad ‘staSur, þar sem
dýr hefur veriS skotiS og flegiS eSa birkjaS ..sæ. máll. vattustad
‘staSur í læk eSa á, þangaS sem vatn hefur veriS sótt’.
I gömlu sænsku landmælingamáli kemur fyrir skiljostad ‘landa-
merki, kennileiti á landamerkjum’.
Lindén vísar einnig til norskra aSstæSna. Hann bendir þar á (í
bæjarnöfnum) kerstaðr ‘staSur fyrir fiskaker, notaS viS laxveiSi’..
ruðstaðr ‘ruddur staSur’, sálthúðarstaðr ‘saltgeymslustaSur’. Sam-
anlagt ná dæmi Lindéns um slík samnöfn og örnefni yfir margar
MaSsíSur.
Til óeiginlegra síað'-nafna teljast einnig heiti samsett af staðr í
ákveSnum afbrigSilegum merkingum, svo og af kvk.-orSinu staþ,
vesturnorr. stgð ‘brún, löndunarstaSur’ o. s. frv.; einnig af hvk,-
orSinu slaþ, slað o. s. frv.
Langsamlega algengasta skýringin á hinum eiginlegu síað'-nöfn-
um er sú, aS staðr hafi sem liluti af örnefni merkt ‘staSur, þar sem
menn hafa setzt aS, frábýli, (út)býli, bústaSur, bær’ e. þ. u. 1. ÞaS
hefur t. d. veriS bent á íslenzku 5taáf-bæina, nöfn, sem orSiS hafa til
næstum fyrir augunum á okkur; Bessaslaðir ‘bær Bessa’, Höskulds-
staðir ‘bær Höskulds’ o. s. frv. Skýringin ‘bústaSur, bær, frábýli, út-
býli’ e. þ. u. 1. á aS formælendum slík stórmenni á sviSi örnefna-
rannsókna sem Oluf Rygh og Magnus Olsen; ennfremur Adolf
Noreen, Elias Wessén, Gösta Franzén (í doktorsritgerSinni, í Nord-
isk Kultur V og í Namn och Bygd, 1961), Ivar Lundahl (í doktors-
ritgerS sinni, 1927), Danina J. Steenstrup og Gunnar Knudsen o. fl.
Samkvæmt skoSun, sem Jöran Sahlgren hélt áSur fram og Ivar
Lundahl hefur fallizt á og John Sprensen aS nokkru leyti, ætti staðr,
staðir aS hafa merkt ‘svæSi, þar sem húsin standa, bæjarstæSi, lóS,
tóft’. SíSan hefur a. m. k. Sahlgren breytt um skoSun. Hann telur nú,
aS inntak orSsins hafi veriS ‘staSur, þar sem dýrin standa, mjalta-
staSur, sel’ („fábod, sáter“). Hann tekur til samanburSar fornvest-
urnorræna orSiS stoðull, no. stöl, sem er náskylt staðr.
Carl Ivar Stáhle hefur gerzt formælandi skoSunar, sem ýmsir