Íslenzk tunga - 01.01.1965, Blaðsíða 24
22
GUNNAR KARLSSON
heimild Björns, orð Guðmundar Andréssonar, gagnrýnir Jón ekki
sérstaklega, en niðurstaða hans sýnir, að hann telur enga ályktun
verða dregna af henni, enda eru orð Guðmundar næsta óljós. Hann
segir svo frá, þar sem hann er að fjalla um framburð á h í orðabók
sinni: „Islandi plerumq(ve) purum II. pronunciant, Norvegi verö
sæpius per K. vel Q. eandem proferre jam audiuntur: Ut Kuor / pro
hvor / Kvort pro hvort / ... etc.“6 Um þetta segir Björn K. Þórólfs-
son: „Orðið „plerumque“ gæti bent lil þess, að Guðmundur hefði
þekt Icv f. hv í íslensku, .. ,“7 Á 17. öld bafa sennilega verið til fleiri
en eitt afbrigði /i^-framburðar, eins og nú er, og hefur það eitt mált
valda því, að Guðmundur kemst svo varlega að orði. Þess má og
geta, að Guðmundur minnist síðar í bók sinni á kv- fyrir hv- í norsku
og færeysku, en nefnir ekki íslenzku í því sambandi.8
2.0. Elztu heimildir, sem bent hefur verið á um breytinguna hv-
> kv- og telja má ótvíræðar, eru frá ofanverðri 18. öld. Eggert Ól-
afsson getur Iiennar í ferðabók sinni, og rímskorðuð dæmi finnast
bjá Sigurði Péturssyni og Benedikt Jónssyni Gröndal.9
2.1. Eggert Olafsson segir svo frá um málfar manna á Vestfjörð-
um: „Her udtales ogsaa iblandt va som ua, og hv som qv, til hvilken
Udtale man ogsaa finder tydelige Spor i Jylland og Norge.“10 Rétt
er að hafa í huga, að Eggert telur til Vestfjarða allt það svæði, sem
nú er kallað því nafni, og auk þess, a. m. k. stundum, Dalasýslu.11
Ferðabókin segir aðallega frá athugunum, sem þeir Eggert og
Bjarni Pálsson gerðu á rannsóknarferðum sínum á árunum 1752—
0 Lexicon islandicum sive gothicœ runœ vel Lingvœ septentrionalis diction-
arium (Havniæ 1683), 100.
7 Um íslenskar orSmyndir, xxxiv.
8 I.exicon islandicum, 154—155.
9 Árni Böðvarsson, „Þáttur um málfræðistörf Eggerts 01afssonar,“ Skírnir
CXXV (1951), 170—171. Jón Helgason, „Anmálan,“ Arkiv XLIII, 92.
10 Reise igiennem Jsland, foranstaltet af Videnskabernes Sœlskab i Kipbcn-
havn, og beskreven af ... Eggert Olajsen. F0rste Deel (Sor0e 1772), 465.
11 Rcise igiennem Jsland. Fjtrste Deel, 373 o. afr,