Íslenzk tunga - 01.01.1965, Page 32
30
GUNNAR KARLSSON
íleiri skólasveinum 4. apríl 1669.38 Jón hefur því útskrifazt nærri
1670, og er því ekki fjarri að ætla, að hann hafi verið fæddur uin
1650.
Ekki er vafi á því, að Jón hefur verið sonur þeirrar Þrúðar, er
áður var nefnd, eins og segir í Grafarbók, og er því til stuðnings
önnur ættartala, Ættartölubók séra Ásgeirs Bjarnasonar, sem er
eiginhandarrit hans, skr. um 1750—1772.39 Hann segir: „Jarþrud-
ur q(ona) Vigfusa40 Jonssonar. a Jon Diakne á Múkaþveraa. Siglde
i Svijarijke. [5 Gúdrún.“41 Hér er móðir Jóns nefnd Jarþrúður, sem
líklega er réttara, og hér er eina heimildin um, að hann hafi verið
djákn á Munkaþverá. I afriti þessarar ættartölu, skr. um 1780—90,
er þetta óbreytt, en annars eru þar ýmsir íaukar með hendi Ólafs
Snóksdalíns og Jóns Espólíns.42
Hannes Þorsteinsson segir í áðurnefndu riti sínu, að Jón sé sum-
staðar auknefndur Þrúðuvangi og standi það í sambandi við móður
hans, en ekki getur hann heimilda þess, og ekki hefur heldur hafzt
upp á þeim.
Næst segir frá Jóni, að liann ræðst til Svíþjóðar, og segir Hannes,
að hann hafi farið á vegum Jóns Eggertssonar. Uno von Troil segir
í skýringargrein við bók sína, Bref rörande en resa til Island:4 3
„Jón Vigfússon kom sem þénari hjá dönskum sendiherra til Stokk-
hólms, og árið 1684 var hann ráðinn til starfa hjá fornfræðanefnd-
inni, þar sem mörg af handritum hans eru varðveitt.“
í skýrslu, sem Gottfrid Kallstenius, lektor í Uppsölum, sendi
llannesi Þorsteinssyni 10. ágúst 1927, segir, að Jón hafi komið til
Stokkhólms 1684, en dáið 14. jan. 1692, örfátækur, „i utblottade
38 Jón Ilalldórsson, Slcólameistarar í Skálholti ... með skýringum og at-
hugasemdum eptir Hannes Þorsteinsson II (Sögurit XV; Reykjavík 1918—25),
229—232.
8» Lbs. 2680, 4to.
49 Svo.
41 Lbs. 2680, 4to, 358.
43 Lbs. 2716, 4to.
43 Bréj jrá íslandi. Haraldur Sigurðsson íslenzkaði (Reykjavík 1961), 170.