Íslenzk tunga - 01.01.1965, Blaðsíða 14
12
GOSTA HOLM
-sted, engilsaxn. slede. Þessi nöfn eru venjulegast tengd býlum, en
mörg þeirra miða augljóslega á ýmiss konar eignir. I engilsaxnesk-
um og miðenskum bréfum er að finna allmikinn fjölda stede-naina.,
sem notuð eru um ákveðna staði útlendna. Meðal þeirra eru mörg
landamerkjanöfn.
Karl Inge Sandred hefur — eftir nákvæma og rækilega rannsókn
á hinum gömlu ensku síede-nöfnum — sett fram þá kenningu, að
meginreglan hafi verið sú, að þau hafi upphaflega verið eignarnöfn.
Og stede hafi verið notað um heitilönd (,,pastures“); Sandred telur
þó ekki girt fyrir merkinguna „outlying area“ og „enclosure“. í
rauninni nálgast kenning Sandreds skýringu Sahlgrens. En á því
leikur ekki vafi, að hann hefur orðið fyrir miklum áhrifum frá því,
sem Lars Hellberg hefur sett fram.
Gösta Franzen birti ritgerð um þetta vandamál 1961. Hann byggði
skoðun sína öðru fremur á íslenzku heimildunum um upphaf stað-
bæjanna og segir, að ‘þeir fræðimenn, sem telja frummerkinguna
vera bæjarstæði, hafi ríkar ástæður fyrir skoðun sinni’. Hann minn-
ir, sem dæmi, á söguna um, hvernig IJöskuldsslaðir hlulu nafn, og
segir: ‘Bærinn ... var reistur, samkvæmt sögunni [Laxdælu], á
landi, sem landnámskonan Unnr gaf Þorgerði sonardóttur sinni í
heimanmund, þegar hún giftist Dala-Kolli. Ekki er kunnugt, hvað
jörðin var nefnd á sínu fyrsta skeiði. Þegar Kollr dó, tók Hpskuldr
sonur hans við henni, og sagan segir ... að hann „tók við allri fpð-
urleifð sinni ok búi; er sá bœr við hann kendr, er Kollr hafði búit á;
hann var kallaðr síðan á Hpskuldsstpðum".’
í sjálfu sér tel ég, að Franzen hafi mikið til síns máls, að því er
snertir hinar íslenzku aðstæður og einnig að nokkru leyti hinar
norsku. En ef til vill er upplýsingum sögunnar þó treyst um of, þar
sem þarna er greint frá aðstæðum hér um bil 300 árum áður en
sagan var rituð. A vorum dögum er það sannleikur, sem varla verð-
ur vefengdur með rökum, að íslendingasögurnar eru að miklu leyti
skáldverk frá 13. öld.
Ég mun ekki gefa mig hér að neinni meiri háttar gagnrýni á þess-
um margvíslegu skoðunum. Fjölbreytni þeirra ein saman sýnir hina