Íslenzk tunga - 01.01.1965, Blaðsíða 94
92
ÚR FÓRUM ORÐABÓKARINNAR V
er, að broddur sé notað hér í myndhverfri merkingu um fyrstu
mjólkina eftir burð, sbr. t. d. orð eins og ferðar- eða jararbroddur,
jylkingarbroddur og veðurbroddur og orðasambönd eins og í broddi
líjsins og að bera at broddi ‘koma í ljós’. Ekki eru skyldleikatengsl-
in við suðurþýzku mállýzkuorðin sennilegri, þar sem allar líkur
benda til, að þau séu tiltölulega ungar blendingsmyndir úr þ. biest
‘broddmjólk’ og þ. brusl ‘brjóst’ eða mhþ. briustern ‘bólgna’.
Vesturgermönsk mál eiga sér sameiginlegt orð um broddmjólk
(sbr. e. beeslings, þ. biest, fe. béost, fhþ. biost), en ekki verður séð,
að svo hafi verið um norðurgermönsku málin. Menn hafa að vísu
reynt að tengja nno. hudda ‘broddmjólk’ vesturgermönsku orðun-
um, sem að var vikið (< *buzdön), en sennilegra miklu er, að þetta
sé sama orð og nno. budda ‘hrúga, hlaði’ og ísl. budda í ýmsum
merkingum og að hér sé aðeins um merkingartilbrigði að ræða, en
þessi orðstofn (þ. e. hudda) mun fremur vera leiddur af rótinni
*bu-ð- en *bu-s- (< *buð(i)ðön).
Ég orðlengi svo ekki frekar um þetta efni, en líklegt þykir mér af
þeim gögnum, sem fyrir liggja, að ísl. no. ábryslir eigi fremur skylt
við so. bresta en suðurþýzk mállýzkuorð eins og bries(t) og briesler-
milch.
Elgur, elgja
í orðabók Sigfúsar Blöndals eru tilgreindar þessar merkingar á
kk-orðinu elgur: 1) ‘elgsdýr’, 2) ‘vatns- eða krapaílaumur, kjafta-
vaðall’, sbr. að vaða elginn, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merk-
ingu, 3) ‘óslitin þeysingsferð’, sbr. að ríða í elg. í orðabók Björns
Halldórssonar segir, að elgur merki ‘kafaldsbylur með frosti, er
stendur lengi og af sömu átt’. Þá kemur og no. elgur fyrir í fornu
skáldskaparmáli, sbr. kenninguna alþjóð elgjar gálga í Sonatorreki
Egils Skallagrímssonar, og er þar sennilega nafn á Óðni. Augljóst
er, að þessar samhljóða orðmyndir eru ekki allar af sama toga. Á
það t. d. við um þá fyrstu og síðustu, dýrsnafnið og Óðinsheitið;
þær eiga vart skylt við hinar.
Tilefni þess, að ég tók að spyrjast fyrir um no. elgur og so. elgja,