Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Side 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR ÁÍSLANDL
1 þriðja dálki hvers mánaðar og í töflunni á eptir December-
mánuði er sýnt, hvað klukkan er eptir íslenzkum meðaltíma, þegar
tunglið og sólin eru í hádegisstað í Reykjavílc. En vilji menn vita,
hvað klukkan sje eptir íslenzkum meðaltima, þegar tunglið eða sólin
er i hádegisstað á öðrum stöðum á Islandi, þá verða menn að gera
svo nefnda „lengdar-leiðrjetting" á Reykjavíkurtölunni. Verður
hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur a u s t a r
en Reykjavík, og '+ 4 m. fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur
vestar en Reykjavík, t. d. á Seyðisfirði• — 32 m., á Akureyri —
16 m., á Isafirði + 5 m. 30. Janúar er tunglið t. d. í hádegisstað í
Reykjavík kl. 8. 23' e. m.; sama kveldið er það þá í hádegisstað á
Seyðisfirði kl. 7.51', á Akureyri kl. 8.7', á Isafirði kl. 8.28', alt
eptir islenzkum meðaltíma.
Á þeim tölum, sem sýna sólarupprás og sólarlag, verða menn
auk lengdar-leiðrjettinganna að gera „f reiddar-leiðrjetting.“ Hún
verður á þeim stöðum, sem liggja 2° og 1° (stigi) norðar en Reykjavík,
sem hjer segir:
21. Jan. 18. Febr. 17. Marts 14. Apr. 12. Maí
2° N. j+ 25 m. + 10 m. f lm. + 9 m. + 22 m.
1° N. + 12 m. + 5 m. 0 m. 4! 4 m. + 11 m.
28. Júll 25. Ág. 22. Sept. 20. Okt. 17. Nóv.
2° N. + 25 m. + 10 m. + 1 m. ± 8 m. + 22 m.
1° N. + 12 m. + 5 m. 0 m. + 4 m. + 10 m.
og sýnir þá efra teiknið á undan tölunum sólarupprás, en hið neðra
sólarlagið.
Sem dæmi má taka Akureyri, sem er 1J4 breiddarstigi norðar
en Reykjavík;
17. Nóvember i Reykjavík s. u. 9. 5' s. 1. 3.19'
lengdar-leiðrjetting — 16 — 16 .
breiddar-leiðrjetting +16 — 16
17. Nóvember á Akureyri s. u. 9. 5' s. 1. 2.47'
eptir íslenzkum meðaltíma.
Um uppkomu og undirgöngu tunglsins er alment þetta að segja:
Kringum þann dag, er við stendur í 4. dálki hvers mánaðar „tungl
lægst á lopti“, er tunglið, þegar það er i hádegisstað, hjerumbil 6 stig
fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Kringum þann dag, er við stendur
„tungl hæst á lopti“, er tunglið, þegar það er í hádegisstað, hjer-
umbil 46 stig fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Viku á imdan og viku
á eptir þessum dögum er tunglið hjerumbil 26 stig fyrir ofan sjón-
deildarhringinn, þegar það er í hádegisstað, kemur upp í austri 6
stundum áður og gengur undir í vestri 6 stundum síðar.