Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Side 26
I árslok 1918 höfðu 894 smáplánetur fengið ákveðin númer.
Árið 1918 sáust 2 nýjar halastjörnur. Á skránni yfir hala-
stjömur, sem hafa sjest oftar en einu sinni, voru í Almanakinu 1912
19 númer. Síðan hafa 3 númer bæzt við, sem sje halastjömur
Borrelly’s, Westphal’s og Giacobini’s, og er umferðartími þeirra
kringum sólina 7, 61 og 6% ár.
Næsta ár, 1921, ber páskana upp á 27. Marts.
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
VII. atr. um almanðk;
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gialda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Ag. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan 4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn. m
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að einkale'yfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta
Almanak þetta kostar óinnfest 1 o aura, en innfest 11
aura, alstaðar á íslandi og í Danmorku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs
loka 1920; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.