Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Page 58
mentamálaráðherra í ráðuneyti Gioiitt’is árin 1903—
1905.
Orlando mun vera af Langbarða-ættum og köllum
vér hann Erlend. Hann hefir lagt mikla stund á rétt-
arvísindi og ritað ýmsar bækur i þeim fræðum, þar
á meðal: »Principii di dirilto cosliluzioncdev og dDí
diritto amminislrativov. Árið 1890 tók hann að gefa
út ritverkið: nArchivio di diritto publicov. Orlando
er því hinn lærðasti í þeim fræðum, er honum hafa
mátt mest að haldi koma á friðarfundinum, enda
heflr hann beitt sér þar fastlega fyrir hagsmunum
þjóðar sinnar, jafnvel svo kappsamlega, að til vand-
ræða hefir horft meðal »þeirra fjögra« og einu sinni
eða oftar stökk hann brott af fundinum í bræði sinni
og heim til Ítalíu. Par var honum auðvitað tekið
með kostum og kynjum og hefir hann óbilandi fylgi
þjóðarinnar. En ekki er ennþá séð fyrir endann á
því, hversu greiðist úr landaþrætum ítala, einkum
við Serba, og vant að gera hvorumtveggju til hæfis.
Johu Edward Bedinoud
fæddist í Dýflinni á írlandi 1856.
Faðir hans var þingmaður og merkismaður. Red-
mond yngri fekk því gott uppeldi. Hann gekk í há-
skólann í Dýflinni og tók þar lagapróf. Gerðisl síðan
málaflutningsmaður á írlandi. Var þá sem oftar róstu-
samt i landinu og snerist hugur Redmonds snemma
að stjórnmálum. Var hann kosinn þingmaður neðri
málstofunnar (í parlamentinu) háifþrítugur (1881) og
gekk þegar í stjórnmálaflokk íra undir merki Parnells.
Gerðist hanu brátt hinn liarðasti og ákafasti mála-
fylgjumaður og framhvötuður flokksins utan þings sem
innan. Árið 1886 tókst hann ferð á hendur til Ástr-
alíu til þess að vinna frelsismálum írlands gagn með-
al landa sinna þar, en aðrir fóru til Vesturheims
sömu erinda. Safnaðist honum stórfé í förinni handa
»þjóðliðinu« irska. Hann sætti ofsóknum í sambandi
(20)