Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Síða 70
Sá hann, hvílíkt gagn mætti vera að flugvélum jafnt
í styrjöld sem á friðartimum. Hét hann pá miklum
verðlaunum fyrir flugafrek. Hæddust önnur blöð
mjög að pessu og buðu stórfé hverjum peim, sem
fyrstur gæti flogið til tunglsins eður annarra hiroin-
hnatta! Spott og skammsýni keppinautanna latti Lord
Northcliffe pó eigi. Er pað nú orðið allmikið fé,
sem Daily Mail hefir greitt i flugverðlaun og litlum
efa bundið, að pau hafi flýtt framförum í fluglist og
smíð flugvéla. Tvívegis hefir blaðið greitt 10 pús-
undir sterlingspunda fyrir flug heima fyrir i Englandi.
Bleriot fekk púsund pund fyrir fyrst flug yfir Erm-
arsund. Síðustu verðlaunin vóru fyrir flug yfir At-
lantzhaf, er peir unnu Alcock og Brown í sumar.
Námu pau 10 púsundum sterlingspunda.
Svo sem alkunnugt er, hefir enska blaðið The
Times löngum borið ægishjálm yfir önnur blöð. Eftir
að rekspölur var kominn á blaðaútgáfu Lord North-
cliffe’s tók honum mjög að leika hugur á að eignast
pað blað, pvi að hann sá, hvílíkt ofurafl fylgdi pví,
ef rétt væri á haldið, auk pess sem honum hefir ef-
laust ekki verið á móti skapi að hafa yfir pví blaði
að ráða, sem víðfrægast var. Petta tókst. Hann fekk
keypt nægilega mikið hlutabréfa útgáfufélagsins til
pess að-ná j'firráðum blaðsins í sínar hendur.
Jafnframt pessu hefir Lord Northcliffe stofnað
mesta fjölda annarra blaða og tímarita. Eru pau öll
í miklu gengi.
Pað ræður að líkindum, að blöð Lord Northcliffe’s
hafi ærið margt manna í sinni pjónustu. Hann greiðir
starfsmönnum sínum hátt kaup og pað hefir aldrei
viljað til enn, að einn einasti maður í pjónustu hans
hafi gert verkfall. í ófriðnum var ekki færra en fimm
púsundir manna, sem atvinnu hafði við blaðafyrir-
tæki Lord Northcliffe’s. Honum er mjög sýnt um að
velja sér hjálparmenn. Hann geldur ritfærum blaða-
mönnum hærra kaup, en nokkurs staðar er gert ann-
(32)
L