Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Page 92
Ágúst 13. og næstu daga varð vart við nokkra lands-
skjálftakippi í Reykjavík og víðar sunnaniands.
— 28. Aldarafmæli Landsbókasafnsins. Minningar-
ræðu um safnið flutti formaður safnsins Jón Ja-
cobson og var boðið til fjölda manna.
Sept. 2. Alpingi (sambandslagaþingiö) sett.
— 9. Feld á Alþingi vantraustsyflrlýsing á tvo ráð-
herra, atvinnumálaráðherra og fjármálaráöherra.
11. Alþingí slitið.
Okt. 1. Útibú Landsbankans að Selfossi tók til starfa.
— 2. Blaðið »Einar Þveræingur« kom út í Reykja-
vík. Ritstjóri Pétur Lárusson. Útgefendur andstæð-
ingar sambandslaganna. Alls komu út 10 blöð. S.
d. kom út í Rvík bæklingur eftir Magnús Arn-
bjarnarson cand. jur.: sísland fyrir Dani og ís-
lendinga«.
— 12. Hófst Kötlugos. Um nónbil tóku að heyr-
ast stórkostlegir dynkir til jökulsins og stigu upp
feikilegir mekkir en jökulhlaup afarmikið fór yflr
Mýrdalssand, sem bar fram ógrynni af urð og
sandi. Varð gosmökkurinn svo hár þegar um kveld-
ið, að eldingar sáust norður í land og brestir og
dynkir heyröust norður á Strandir, í Skagnfjörð,
Öxarfjörð, á Sléttu og i Pistilfjörð. Fjórir bæir eydd-
ust af hlaupinu í Meðallandi og fórst margt af fé-
naði, en menn björguðust. Hlaupið tók brúna af
Hólmsá. Öskufall varð mikið í næstu sveitum, svo
að oft varð myrkur og víða tók alveg fyrir jörð.
Barst askan viða um land. Vóru fannir dökkgráar
vorið eftir af öskuuni í fjöllunum norðan við
Svarfaðardal og á Látraströnd. Talið er að gosum
væri lokið 3. nóv. — Um gosið hafa verið gefnar
út greinilegar skýrslur og frásagnir.
— 19. Almenn atkvæðagreiðsla um sambandslögin,
Nóv. í byrjun mánaðarins tók drepsóttin spanska að
geisa um Reykjavíkurbæ. Hafði hún borist þang-
að með skipi frá Danmörku. Er talið, aö legið
(54)