Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Qupperneq 165
NÍTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
141
fyrir Þjóðræknisfélagið að vinna að þessu
máli.
Eg endurtek því þá áskorun til Þjóð-
ræknisþingsins sem nú fer i hönd, að það
taki þetta mál á dagskrá, og til rögg-
samra framkvæmda.
Vogar, 12. febrúar, 1938.
Guðm. Jónsson frá Húsey”
Létu menn í ljósi að nauðsyn væri á að
eitthvað væri gjört í þessu máli, og tóku
til máls í þá átt, Riohard Beck, séra
Jakob Jónsson, J. J. Bildfell og séra Guðm.
Árnason. Gerði séra Guðm. Árnason til-
lögu og R. Beck studdi að 5 manna nefnd
sé kosin til að íhuga málið. Samþ. Voru
kosnir Dr. R. Beck, séra Jakob Jónsson,
séra Guðm. Ámason, J. J. Bildfell og dr.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Undir nýjum málum var þá lesið bréf
frá Haraldi Guðmundssyni, menta- og at-
vinnumála ráðherra Islands, til Þjóðrækn-
isfélagsins í sambandi við þátttöku Islend-
inga í alheimssýningunni í New York
vorið 1939. Er bréfið sem fylgir:
‘‘Islenzka ríkisstjórnin leyfir sér hér
með að skýra stjórn Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi frá því, að eins og
forseta Þjóðræknisfélagsins, dr. Rögn-
valdi Péturssyni, er kunnugt, hefir ríkis-
stjórnin ákveðið að beita sér fyrir því,
að Island taki boði Bandaríkjastjórnar
um þátttöku í alheimssýningu I New York
árið 1939.
Að svo stöddu er ekki endanlega vitað
hvort úr þátttöku getur orðið, en þess má
vænta að mjög bráðlega verði fullnaðar-
ákvörðun um það tekin.
Hefir ríkisstjómin tekið fyrgreinda á-
kvörðim af því, að hún hefir komist að
i'aun um almennan áhuga hér á landi fyrir
sýningarþátttöku. Jafnframt er henni
kunnugt um, að almen't er það einnig
talið mjög æskilegt, að fá vitneskju um,
hvort Vestur-lslendingar muni vilja láta
S'g það nokkru varða að Island taki þátt
1 sýningunni, og hvort þeir muni jafnvel
v'lja hugsa til samvinnu við Islendinga
t*ér heima, eftir því sem þvi mætti verða
'áð komið, bæði um undirbúning undir
sýninguna vestra og um ýms framkvæmd-
aratriði við væntanJega sýningu eftir að
hún hefir verið opnuð.
Ríkisstjórnin leyfir sér þvi með bréfi
þessu, að óska álits stjórnar Þjóðrækn-
isfélags Islendinga í Vesturheimi um hin
umspurðu efni, um leið og hún vill bæta
þvi við, að henni væri mjög kærkomið
að fá bendingar og tillögur frá stjóm
Þjóðræknisfélagsins um, hvernig sam-
vinnu um ýms framkvæmdaratriði við
sýninguna mætti verða fyrir komið.
Þess ber jafnframt að geta, að ef úr
þátttöku verður mun hér verða skipuð
sérstök framkvæmdarnefnd fyrir tslands-
sýninguna, og mun sú nefnd síðar eiga
nánari bréfaskifti við stjórn Þjóðræknis-
félagsins eftir því sem bendingar og til-
lögur félagsins gefa tilefni til, og verk-
efni, til úrlausnar, verða fyrir hendi.
Ríkisstjórnin vill að lokum, enda þótt
nú, er bréf þetta er skrifað, ekki sé full-
víst að ráðist verði í að taka þátt í sýn-
ingunni, leyfa sér að bæta því við, að
henni væri kærkomið að mega vænta
svars stjórnar Þjóðræknisfélagsins, eftir
atvikum hið fyrsta.
Með sérstakri virðingu.
H. Guðmundsson
Eftir nokkrar umræður var málinu vis-
að til samvinnumálanefndar með tillögu
frá J. J. Bíldfell og séra Jakob Jónssyni.
Las þá forseti erfðaskrá Elíasar Jó-
hannssonar, Gimli, þar sem hann arí-
leiðir Þjóðræknisfélagið að álitlegri pen-
ingáhupphæð. Las hann ennfremur bréf
frá M. O. Goodmanson í Flin Flon, um
löngun Islendinga í þeim bæ, nær hundrað
að tölu, til að mynda félagsskap með sér
og vera i sambandi og samráðum við
Þjóðræknisfélagið um slíka félagsmyndun.
Var bréfi þessu vísað til útbreiðslunefnd-
ar.
Þá mintist forseti á bók Einars Jóns-
sonar myndhöggvara, er væri komin
vestur. Væru alt nýjar myndir í bókinni
og hún mjög eiguleg. Væri bókin til sölu
á $2.65 og fengist hjá Þjóðræknisfélaginu.
Voru þá skýrslur lagðar fram í sam-
bandi við hingað komu fröken Halldóru
Bjarnadóttur. Nefndarkonurnar, af hálfu
Þjóðræknisfélagsins í þessu máli: Mrs.
Guðrún H. Jónsson, skýrði frá starfi mót-