Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Síða 175
NÍTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
151
bandi við minnisvarðann, sem hamlar því
að bæjarstjómin á Gimli taki að sér um-
sjón hans, eins og- ákveðið er í aukalögum
nr. 72, sem upp hafa verið lesin hér á
þinginu, felur þingið stjómarnefndinni að
leita samkomulags og samvinnu við bæj-
arstjómina á Gimli i þeim tilgangi að við
verkið verði lokið á viðeigandi og sæmi-
legan hátt. Skal stjórnarnefndinni heimilt
að vierja úr félagssjóði því fé, sem henni
þykir nauðsynlegt til þess að verkinu
verði lokið sem fyrst, en jafnframt skal
hún fara þess á leit við bæjarstjóm Gimli-
bæjar, að hún að minsta kosti taki sann-
gjarnan þátt í kostnaðinum, þar sem hún
er annar aðili þessa máls á móti félaginu.
Nefndin álítur ekki vansalaust hvorki
fyrir Gimli né heldur Islendinga hér í
fylki að næsta umhverfi varðans liggi
undir ágangi frá skepnum og óhlutvönd-
um mönnum, og mælir eindregið með, að
úr þessu verði ráðið hið allra bráðasta.
Á þjóðræknisþingi 24. febr. 1938.
J. J. Bildfell
Guðm. Ámason
Minnihluta tillaga minnisvarðanefndar
Þar sem bending hefir komið fram til
þingsins að nauðsyn bera til að gerð sé
umbót á minnisvarðasvæðinu á Gimli svo
sem girðing á blettinum o. fl.
Þá vill minnhluti leggja til að stjóm-
arnefnd félagsins sé falið málið til fram-
kvæmda:
1. Að stjórnamefndin afli sér nauð-
synlegra upplýsinga um raunverulegt fyr-
irkomulag og kostnaðar áætlun í því sam-
bandi.
2. Að stjómamefndin komi sér í sam-
band við bæjarstjóm Gimli og leitist við
að fá Gimli-bæ til að taka að sér það
nauðsynlega starf og kostnað þess.
3- Að öðrum kosti sé leitað almennra
samskota, eða meðal einstaklinga til lúkn-
ingar þvi verki.
A þingi 25. febr. 1938.
A. P. Jóhannsson
Um málið töluðu séra Guðm. Árnason,
J' Bíldfell, Árni Eggertsson, S. Vil-
hjálmsson, Ari Magnússon, Mrs. H. Lín-
dal og G. Levy. Séra Jakob Jónsson og
Th. Thorfinnsson lögðu þá til að umræð-
Um aé lokað. Samþ. Var þá minnihluta
tillaga borin upp til atkvæða, sem breyt-
ing við meirihluta álitið, og hún samþ.
XJndir nýjum málum gat Arni Eggerts-
son þess að á þinginu hefði fröken Hall-
dóra Bjanadóttir gefið $5.00 í Rithöfunda-
sjóð; svo að inn hefðu komið alls á þing-
inu $11.00. Séra Jakob Jónsson og séra
Guðm. Árnason lögðu til að 5 manna
milliþinganefnd sé skipuð í þetta mál,
eins og að undanfömu. Samþ.
Tilnefndi forseti í nefndina: Áma Eg-
gertsson, séra Guðm. Árnason, séra Egil
Fáfnis, séra Sigurð ólafsson og séra Jakob
Jónsson.
Séra Jakob Jónsson skýrði frá að til
stæði að Eggert Guðmundsson listmál-
ari kæmi vestur um haf á komandi ári,
og gerði hann þar af leiðandi svohljóðandi
tillögu: Þar sem líkur eru til að Eggert
Guðmundsson listmálari komi vestur um
haf felur þingið stjórnamefndinni að
veita honiun þá aðstoð af félagsins hálfu
er hún telur mögulega. B. Dalman studdi
tillöguna og var hún samþ.
Er hér var komið var orðið áliðið dags
og gerði A. P. Jóhannsson og J. Húnfjörð
tillögu um að fundi sé frestað til kl. 7.39
að kveldi. Samþ.
SJÖUNDI FUNDUR
var settur kl. 8 að kvöldi í kirkju Sam-
bandssafnaðar. Var síðasta fundargjörð
lesin og samþykt.
Fjármálanefnd lagði þá fram álit sitt
yfir fjórða lið bókasafnsnefndar:
Fjármúlanefndin
Þar sem tillögu 4. gr. í Bókasafnsnefnd-
arálitinu hefir verið vísað til fjármála-
mefndarinnar þá skal fúslega við það
kannast að oss hefir eigi unnist tími til
að kynna okkur til 'hlitar þá nauðsyn
sem til þess ber að 50 dollarar séu veittir
úr félagssjóði til bökasafnsins. Sér í lagi
á meðan að gagngjörð Ibókaskifti ekki
hafa veri tekin upp á meðal deilda er tU-
heyra Þjóðræknisfélaginu, þá leyfum vér
oss að gjöra þá tillögu að þessum lið
nefndarálitsins sé vísað til stjórnarnefnd-
ar félagsins itU yfirvegunar og úrslita.
A þjóðræknisþingi 25. febr. 1938.
A. P. Jóhannsson