Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1944, Side 124

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1944, Side 124
102 TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA “Það dugir ekki að deila við veðrið amma mín, og eg held að ósýnilegu gestirnir komi ekki heldur hér í nótt.” Hún horfði glettnum augum á disk, sem gamla konan hélt á, fullum af sælgætismat og spurði: “Er þetta handa huldufólkinu? Eg er mest hissa á þér, að halda svona fast við gamla hjátrú, því að á ýmsan hátt ert þú ekki mjög gamaldags.” Gamla konan svaraði í föstum og hægum róm: “Þetta er gamall og góður íslenskur siður. Þú getur gjarnan skoðað diskinn sem tákn gestrisninnar, ef þér svo sýnist,” og um leið og hún sagði þetta, gekk hún yfir að skattholinu, tók lyklakippu upp úr pilsvasa sínum, lauk upp ann- ari hurðinni á skápnum og stakk diskinum inn í hilluna, hallaði svo hurðinni aftur, án þess að læsa henni. Svo færði hún einn stólinn yfir að ofninum, settist á hann og vermdi á sér hendurnar og sagði góðlátlega: “Eg er hrifin af svona framförum eins og ofninum þeim arna, fallega bjarta lampanum, gluggatjöldunum og fleiru, sem móðir þín hefir fengið til vegar komið, til að fegra og bæta lífið hér á heimilinu. Eg lái ekki tengdadóttur minni þótt hana langi til, að auka hýbýlaprýðina og þæg- indin með þessum nýtísku áhöldum. Eg ann öllum verulegum framförum og er glöð yfir því að vita, að þjóðin er að vakna til meðvitundar um, að vesalmenska er ekki til frambúðar. En það er engin framför í því, að öll- um góðum og fögrum siðum og þjóð- háttum sé kastað hugsunarlaust á sorphauginn. íslensk gestrisni er ein af góðu gömlu siðunum, þar með meina eg ekki heimboð eða veislu- höld, eins og þú ætlaðir að hafa í kvöld, heldur hitt, að taka vel á móti °g gjöra gott hungruðu og þreyttu ferðafólki, af hvaða stigum sem eru. Meðan eg var húsfreyjan hér, reyndi eg að fylgja þeim sið, og eg hélt á- fram gamla siðnum, að byrja árið með því, að ætla matarbita á nýárs- nótt því ferðafólki, sem kynni að vera á ferð, þótt menn yrðu þess ekki varir. Nú sér móðir þín vel um alla gesti, en öll mín gestrisni nú orðiö er þessi eini diskur á nýársnótt.” “Þú trúir því þó ekki, að huldufólk sé til!” Gamla konan brosti og sagði: “Eg læt það liggja á milli hluta. Eg hefi aldrei séð huldufólk, en eg hefi held- ur aldrei séð engla guðs, sem seridn' eru niður til jarðarinnar til að vernda okkur, en eg trúi því, að þeir séu til. og það veit eg, að þú efast þó ekki um. Er það óhugsanlegt að á jörðinm séu líka til einhverskonar verur, sem ekki eru sýnilegar?” “Það held eg að sé nú alveg óhugS' anlegt, og fólk er hætt að festa trúnað á slíkar sagnir, nema eins og skáld' skap, þar sem ímyndunarafl skáld' anna leikur sér að því, að segja fra fólki, sem lifði í huliðsheimum töfrc' og undra, því alt getur skeð í ævin' týrum.” “Jæja, eg þræti engu. Þegar eg var barn voru mér sagðar huldufólks sögur eins og sannleikur, en ekki eins og ævintýri. Þessar sögur heiH' uðu mig og það eru vafalaust þeirrJ áhrif, sem eiga sinn þátt í því, að eS hefi alla ævi haft þá trú — eða hjá trú, að alt árið færi eftir því, hvorL hlutirnir gengi manni með eða naót a nýárinu.” “Það verður skemtilegt ár, sem 1 hönd fer fyrir mig; hér sit eg el11
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.