Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 58

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 58
40 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Af öðrum sálmum skal aðeins vak- in athygli á „Söngvísu á jólahátíð- inni“ því úr henni er kaflinn „Rauð jól“ í íslands þúsund ár, með réttu metinn valskáldskapur. En upphaf- ið er svo: Jólin iþýð/lét sinn lýð/ljúfur guð fá, öngum, stríð,/öllum blíð,/í ásjá. Heilög mál/hvörra sál/hýran sinn koss gefur ennú/Guð þrennur/gott hnoss. Skyld sálmunum eru eftirmælin, enda stundum kölluð sálmar eftir menn. Af þeim má nefna eitt eftir dóttur séra Stefáns Ólafssonar, ann- að eftir vinkonu sr. Bjarna og bréf- félaga, Guðnýju Pálsdóttur í Suður- sveit, þriðja eftir tengdason hans í Hallormsstað. Þótt sálmar, guðsorð og kenni- kvæði sé umfangsmikil í kvæðasafni Bjarna, iþá munu ljóðabréfin vera umfangsmest. Alls munu vera ljóða- bréf til 25 manna í safninu. Flest bréfin skrifar hann til tveggja kvenna, Arndísar dóttur sinnar á Hallormsstað, með 27 flokka bréfa, og Guðnýjar Pálsdóttur á Kálfafells- stað, með 12 kvæði. Næst þeim geng- ur Stefán Ólafsson, prestur í Valla- nesi, með 8, og þá séra Eiríkur, son- ur Bjarna á Hallormsstað, með 3. Tvö bréf skrifar hann Elínu Þor- láksdóttur (Skúlasonar biskups) sýslumannsfrú á Víðivöllum (og Skriðu); hún hafði tekið son af honum. Þá skrifar hann samtíma- prestum að Kálfafellsstað, Bjarna- nesi, Stafafelli, Berufirði, Eydölum, Desjarmýri, Valþjófsstað; sumir þeirra voru frændur hans af Ey- dalaættinni; Jakob í Bjarnanesi son- ur hans. Einna fróðlegast er að athuga bréfin til Arndísar dóttur hans á Hallormsstað, af því að þau ná yfir svo langan tíma. Þriðja bréfið í röð- inni er dagsett 1681, og hafi hann skrifað eitt bréf á ári, gæti fyrsta bréfið verið frá 1679. En síðasta bréf- ið er dagsett 1701, ári áður en hún missir manninn. í bréfum þessum er oft allmikið af fyrirbænum og heillaóskum, en fréttir eru iþar líka alltíðar, bæði úr sveitinni og af heimili prests, og nefnir klerkur alloft heimilisfólkið með nafni og getur þess hvað það sé að starfa. Glefsur af utanhéraðs- fréttum koma og fyrir, sérstaklega viðvíkjandi siglingu á Reyðarfjörð og það sem þar með fylgir, ekki sízt tóbakið. Klerkur tekur sjálfur í nef og er oft vanur að senda dóttur sinni tóbakspís til páskanna. í sum- um bréfunum segir klerkur frá svaðilförum sínum á heimleið frá dóttur sinni yfir hálsinn að Þing- múla. Árið 1686 er illt og hart; klerkur býst við að 26 hross sín falli. Ofan á jarðbönn bætast kvefsýki, sem prestur lýsir sem verstu innflúensu, og tóbaksleysi. Haustið 1686 lýsir prestur svo heimilisfólki sínu og störfum þeirra: 10. Fagur á fótum stendur flokkur bæjarins enn, breiða út báðar hendur brúðir í tónaðinn. Vakandi leggja lið, þá líður á svefnrofið: Gerða, Tóta, Gunna og þær sem gráta sjóinn við; hvör til hollra þarfa hér hafa nóg að starfa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.