Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 82

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 82
64 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA ar, svo sem lög um skólaskyldu og umferðarreglur á götum og þjóðveg- um o. s. frv., svo eitthvað sé nefnt. Eins heimullegt mál og hvaða nöfn foreldrar gefa börnum sínum, getur naumast komið undir þessar greinir laganna, hversu langt sem er leitað, og glæpur er það áreiðanlega ekki. Eins og sjá má af framanskráðu, eru þessar hugleiðingar hvorki með eða móti upptöku ættarnafna. En vorkunn er það bæði og nauðsyn þeim, er erlendis dvelja langvistum, þótt þeir taki föst nöfn fyrir sig og niðja sína. Og er það þá sanngjarnt eða samboðið einstaklingsfrelsinu að þvinga þetta fólk til að breyta um nöfn, ef það skyldi flytja aftur heim til föðurlandsins? Og enn síður virð- ist það virðingu ríkisins samboðið, að krefjast þess, að útlendingur, sem veitt eru borgararéttindi, breyti nafni sínu, ef hann að öðru leyti hefir fullnægt öllum þeim skyldum um búsetu og hegðan, sem krafizt er. Æskilegast væri, að eitthvert sam- komulag gæti komizt á um þetta nafna-ástand. En kúgunarlög eða bannlög eru ekki lýðfrjálsri þjóð samboðin. Menntamálaráð ætti að- eins að hafa tillögurétt um skírnar- nöfn, og skyldu framkvæmdir fald- ar kennurum og prestum, en úr- skurðarvaldið skyldi þó ávallt hvíla hjá foreldrunum. Ættarnöfn mætti ákveða með almennri atkvæða- greiðslu, segjum á tíu ára fresti, eða á einhvern annan þann hátt, er sýnt gæti almennan vilja landslýðsins. Öðru máli var að gegna um okk- ur hér vestra. Okkur var slöngvað inn í þjóðfélag, sem ekkert þekkti annað en föst ættarnöfn. Það hefði víst reist augabrúnir siðferðispostul- anna ensku, ef þeir hefðu heyrt, að Jón Sveinsson og Sigríður Árnadótt- ir byggðu eina sæng eins og hjón. Við vorum rekin eins og sauðfé í rétt og skrásett á innflytjendalistan- um eins nálægt enskri stafsetningu og komizt varð. En eins og allir vita eru 33 stafir í íslenzka stafrófinu, sumir að vísu óþarfir, en aðeins 26 í því enska, og sumir þeirra líka ónauðsynlegir. Enska stafrófið á enga skerpta (accented) hljóðstafi, svo sem á, í, ó, ú, ý, o. s. frv. né heldur ð eða þ. Þessa stafi varð því að fella úr eða hliðra til samkvæmt enskunni. Varð þá S oftast að d og þ ávallt að ih. Ekki er heldur til hreint u-hljóð í ensku máli. Af því leiddi, að u fær annað hvort ú eða ö hljóð. Guðmundsson breyttist í Goodmanson eða Goodman og nöfn, sem byrja eða enda á Gunn, eru bor- in fram með ö-hljóði eins og u í enska orðinu Gun (byssa). Til þess að ná einum íslenzkum staf eða hljóði verður enskan að hrúga sam- an mörgum stöfum. Þannig er orðið þó í íslenzku stafað ihough í ensk- unni. En þetta var aðeins byrjunin. Þeg- ar út 'í dagleg störf og samfélag kom, kastaði fyrst tólfunum. Drýldnir og ómenntaðir verkstjórar skelltu hvaða nöfnrnn, sem þeim þóknað- ist, á verkamennina, sem oft og tíð- um gátu litla hönd borið fyrir höfuð sér á ensku máli. Ekki tók heldur betra við fyrir vinnukonunum. Hús- freyjurnar gáfu þeim ný nöfn, — Guðný varð að Gwen, Björg að Bertha, Auður að Aida, Sigríður að Sarah og Guðrún að Grace, þegar bezt lét. Öldruð kona, sem við hjón-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.