Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 119
PINGTÍÐINDI
101
Frú Hólmfríður Daníelson talaði um
útgáfu á bók S. B. Olson, Pioneer
Sketches og vakti athygli á bókinni. Að
því búnu söng séra Hjalti Guðmunds-
son nokkur lög þinggestum til mikillar
ánægju.
Ritari, Haraldur Bessason, flutti
skýrslu milliþinganefndar í minjasafns-
málinu.
Skýrsla minjasafnsnefndar
í þessu máli hefir lítið áunnizt á ár-
inu, og hefi ég vegna fjarlægðar ekki
getað sinnt því eins og skyldi. Vil ég
minna á ársskýrsluna frá í fyrra, þar
sem ég fór fram á það, að deildirnar
tækju málið að sér hver í sínu byggð-
arlagi. Eftir því sem ég bezt veit, hefir
þessu ekki verið neinn gaumur gefinn
af Þjóðræknisfélaginu, en einungis nefnd
sett í málið, eins og áður hefir verið.
Á árinu meðtók nefndin Árbækur
>,Jóns Trausta“ í Blaine að gjöf, en til-
kynning um þetta birtist í síðustu árs-
skýrslu nefndarinnar. Önnur gjöf, með-
tekin frá Ellu Hall, var silfurbúinn upp-
hlutur, og eru þessir munir nú í safn-
inu.
Ég vil mælast til, að Þjóðræknisfé-
lagið haldi þessu starfi áfram og reyni
að finna nýjar leiðir til framkvæmda.
Marja Björnson
1371 Lee St.
White Rock, B.C.
Miss Guðbjörg Sigurdson skýrði frá
því, að Miss Elín Hall hefði arfleitt Þjóð-
rseknisfélagið að íslenzka þjóðbúningn-
um. Dr. Richard Beck þakkaði gjöfina
°g minntist Elínar Hall og trygglyndis
hennar við Þjóðræknisfélagið. Frú Herdís
Eiríksson tók þessu næst til máls og
ræddi söfnunarstarfið. Dr. V. J. Eylands
tok og til máls og kom fram með þá
hugmynd, að leita hófanna við forráða-
menn Betels, hvort ekki myndi unnt að
fa minjasafninu stað þar í elliheimilinu.
Margir lýstu stuðningi sínum við til-
mgu dr. Valdimars. Frú Hólmfríður
Laníelson gat þess, að í ráði væri, að
stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins ræddi
þetta mál við stjórn elliheimilisins. Var
°E væntanlegri stjórnarnefnd falið að
athuga þetta mál nánar. Rætt var um
Það að skipa þriggja manna milliþinga-
nefnd í málið eða þá nefnd, þar sem
|llar þjóðræknisdeildir ættu fulltrúa.
bamkvæmt tillögu frá frú Herdísi Eiríks-
son var samþykkt, að forseta skyldi fal-
m_að skipa í minjasafnsnefnd einn full-
trua fyrir hverja þjóðræknisdeild.
Fimmli fundur
var settur miðvikudagsmorguninn 22.
febr. 1961, kl. 10.15 f. h.
Fundargerð síðasta fundar var lesin
upp og samþykkt. Þá voru teknar fyrir
skýrslur þingnefnda. Frú Herdís Eiríks-
son flutti nefndarálit í fræðslumálum.
Nefndarálil í fræðslumálum
1. Nefndin leggur til, að þingið þakki
þeim einstaklingum, er á árinu hafa
hjálpað bömum og unglingum við ís-
lenzkunám. Einnig, að þeim deildum
verði þakkað, sem haldið hafa uppi
bamasöngflokkum innan sinna vébanda.
2. Að þingið láti ánægju sína í ljósi
yfir þeim merkilegu fréttum, að íslenzka
er nú ein kennslugrein við barnaskólann
að Mountain, N.D.
3. Að þingið fagni því, að hafizt er
handa um samningu íslenzks kennslu-
kvers. Nefndin leggur til, að útdráttur
úr slíku kveri verði fjölritaður og hon-
um útbýtt meðal deilda, svo að þær
geti notað hann, þar til hin fyrirhugaða
bók er fyrir hendi.
4. Að deildimar, hver í sinni byggð,
stofni bamasöngflokka, og æskilegt væri
það, ef deildirnar gætu enn einu sinni
hjálpað börnum og unglingum til þess
að læra íslenzka tungu.
5. Að milliþinganefnd sú, sem skipuð
var á síðasta þingi, verði skipuð aftur
í ár. Sú nefnd á að hafa það með hönd-
um að hjálpa deildum, ef þær óska þess,
við stofnun barnasöngflokka eða lestr-
arflokka.
6. Eftir rækilegar umræður leggur
nefndin til, að útbreiðslumálnefnd og
fræðslumálanefnd verði sameinaðar, þar
sem þessar nefndir fjalla um sams kon-
ar málefni að mestu leyti.
Herdís Eiríksson
Oddný Ásgeirsson
Sigrún Nordal
Odin Thornton
Rannveig Guðmundsson.
Frú Herdís lagði til, að nefndarálitið
yrði tekið fyrir lið fyrir lið. Var svo
gert og allir liðir samþykktir, svo og
hlaut nefndarálitið í heild stuðning og
samþykki.
Séra Jón Bjarman flutti skýrslu þing-
nefndar í samvinnumálum við fsland.
Skýrsla þingnefndar
í samvinnumálum við ísland
1. Þingið fagnar því, að góð samvinna
hefir haldizt við ísland á árinu. Þingið
álítur, að slík samvinna sé nauðsynleg