Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Blaðsíða 9
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 2012 9
Sigríður Margrét Sigurðardóttir
Kennaradeild HáSKólanS á aKureyri
rúnar SigþórSSon
Kennaradeild HáSKólanS á aKureyri
Uppeldi og menntun
21. árgangur 1. hefti 2012
Forystuhegðun skólastjóra
við að þróa forystuhæfni skóla
Í greininni er fjallað um hluta af niðurstöðum rannsóknar á þætti skólastjóra í að byggja upp
forystuhæfni í grunnskóla . Starfshættir hans voru metnir út frá líkani Lambert (2006) af því
hvernig forystuhegðun skólastjóra hefur áhrif á slíka hæfni . Rannsóknin var eigindleg tilviks-
rannsókn í grunnskóla sem hafði þróað starfshætti sína á um tíu ára tímabili undir forystu sama
skólastjóra . Gögnum var safnað með hálfformgerðum viðtölum, vettvangsathugunum, spurn-
ingakönnun, skjalarýni og óformlegum samtölum . Þátttakendur voru valdir úr öllum hópum
skólasamfélagsins . Niðurstöður bentu til þess að skólastjórinn hefði náð valdi á starfsháttum
sem taldir eru stuðla að forystuhæfni skóla og að forystuhegðun hans, persónulegir eiginleikar,
þekking og færni hefði skipt sköpum í því að efla forystuhæfni skólans .
Efnisorð: Skólastjórnun, forysta, forystuhæfni skóla, forystuhegðun, skólaþróun
inn gang ur
Rannsóknir á sviði forystu og skólaþróunar benda til þess að forysta sé einn af þeim
þáttum sem hefur mest áhrif á skólaþróun og árangur nemenda (Leithwood, Louis,
Anderson og Whalstrom, 2004). Af því má draga þá ályktun að ein áhrifaríkasta leið
til skólaþróunar sé að þróa forystu og forystuhæfni skóla. Bandaríski menntunar-
fræðingurinn Linda Lambert (2006) skilgreinir forystu sem gagnkvæmt (e. reciprocal)
stefnufast nám innan samfélags. Í því felst að forysta lærist; hún er ekki eignuð einni
persónu eða fáum heldur þróast hún í starfi hópa eða teyma, verður sameign þeirra
og birtist í aukinni virkni sem verður einkennandi fyrir menningu stofnunar (Harris,
2010; Lambert, 2003; Spillane, 2006).
Sameiginleg og dreifð forysta eins og lýst er hér að framan verður hins vegar ekki
til í tómarúmi heldur benda rannsóknir til þess að forystuhegðun skólastjóra skipti
höfuðmáli til að koma henni á (Lambert, 2003, 2006; Leithwood o.fl., 2004). Rann-
sókn Leithwood og félaga (2004) benti enn fremur til þess að sterk tengsl væru milli