Hugur - 01.01.2008, Page 53

Hugur - 01.01.2008, Page 53
Siðferði, hugsun og ímyndunarafl 51 verið ókunnugt um. En það er ekki staðreynd um uppeldi Sókratesar af því tagi sem Sókrates álítur að Kríton þurfi að viðurkenna.7 Og hún bætir við: Frankena er sannfærður um það, áður en hann skoðar Kríton í raun, að siðferðileg hugsun um tiltekin mál sé fólgin í því að fella staðreyndirnar í málinu undir lögmál og reglur. Hann eygir ekki þann möguleika að siðferðileg hugsun sé fólgin í því hverjar maður álítur staðreyndir málsins vera, hvernig maður sér þær og lýsir þeim. Dæmið sem hann velur um siðferðilega hugsun er dæmi þar sem það er býsna augljóst að ákaflega frumleg siðferðileg hugsun er fólgin í því að lýsa staðreyndum málsins - lýsa þeim á þann hátt að hægt sé að tengja þær við vel þekkt siðalögmál - og fyrir því lokar hann augunum algerlega. Staðreyndir eru staðreyndir. Sókrates segir að stryki hann úr fangelsi væri hann að svíkja loforð. Ef það er forsenda í röksemdafærslu, og það er ekki siðferðileg meginregla, þá hlýtur það að vera staðhæfing um staðreynd - svo par getur ekki verið neina siðferðilega hugsun að finna.8 Diamond bendir með öðrum orðum á að lýsing Frankena á siðferðilegri hugsun - lýsing sem margir líta á sem meira eða minna sjálfsagða - gangi ekki upp. Hið athyglisverða við dæmið sem Frankena velur til að útlista hugmynd sína um sið- ferðilega hugsun er einmitt sú staðreynd að dæmið gerir „býsna augljóst að ákaf- lega frumleg siðferðileg hugsun er fólgin í því að lýsa staðreyndum málsins". Diamond bætir því við að frumleikinn í lýsingu Sókratesar á staðreyndum sé und- irstrikaður í samræðunni með afstöðu Krítons. Kríton botnar upphaflega ekkert í ástæðum Sókratesar fyrir að strjúka ekki úr fangelsinu. Hann skilur ekki Sókrates þegar hann spyr hvort hann væri ekki að gera ríkinu illt með því að flýja án þess að hafa freistað þess að telja ríkið á að láta sig lausan. Með því að persónugera lögin beitir Sókrates siðferðilegu ímyndunarafli með hætti sem gerir Krítoni kleift að sjá aðstæðurnar í nýju ljósi. Kríton getur þá fyrst séð að með ákvörðun sinni er Sókrates ekki að bregðast fjölskyldu sinni og vinum, en er á hinn bóginn trúr því besta í sjálfum sér og samfélagi sínu. Allt fer þetta hins vegar framhjá Frankena sem virðist álíta að lýsing staðreynda sé ekki hluti af siðferðilegri yfirvegun; þá fyrst þegar slík lýsing hafi verið sett fram sé komið að hinni eiginlegu siðfræðilegu vinnu, sem fólgin er í því að beita siðareglum. Þessi mynd er svo einráð í huga Frankena að hann getur ekki séð í hugsun Sókratesar neitt annað en hana. Hann getur ekki ímyndað sér að ímyndunaraflið skipti máli fyrir siðferðilega hugsun, jafnvel þótt skólabókardæmið um siðferðilega hugsun sem hann velur sýni það berlega. Gagnrýni Diamonds á hugmyndir Frankena leiðir að minnsta kosti tvennt í ljós. Annars vegar sýnir hún að siðferðileg sýn og ímyndunarafl eru veigamiklir þættir 7 Cora Diamond, „Missing the Adventure: Reply to Martha Nussbaum“, s. 310. 8 Sama rit, s. 310.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.