Hugur - 01.01.2008, Síða 62

Hugur - 01.01.2008, Síða 62
60 Jón A. Kalmansson leikann. Veruleikinn er og mun alltaf verða skilningi okkar og skynsemi að veru- legu leyti ofviða, og þess vegna þurfum við bæði að læra að sætta okkur við og lifa með því sem er ofvaxið skilningi okkar, og sætta okkur jafnframt við að vera verur með svo takmarkaðan skilning. Þriðja ástæðan fyrir skorti manna á undrun gagnvart veruleikanum, og sennilega sú veigamesta, tengist athyglisgáfú okkar og því sem truflar hana. Eins og ég sagði áðan erum við praktískar verur sem eru uppteknar af lífsbaráttunni. Um leið erum við sjálfhverfar verur. Athygli okkar er takmörkuð og hún vill beinast að okkur sjálfúm og því sem varðar okkur sjálf persónulega. Hver maður þarf ekki annað en beina athyglinni stundarkorn að eigin vitund til að taka eftir því hve flöktandi og sjálfmiðuð hún oftast er. Hún er gjarnan hlaðin þráhyggjukenndum hugsunum um verkefni dagsins, minningum um fortíðina, áhyggjum af framtíðinni, og þar fram eftir götum. Ef hversdagslegri vitund okkar og athygli er líkt við orkukerfi þá er augljóst hve stór hluti orkunnar beinist að okkar eigin sjálfi og hve lítill hluti hennar vill beinast að veruleikanum utan okkar.291 þessu þarf ekki að felast nein fordæming heldur aðeins viðurkenning á því hvers kyns verur við erum. Hvers- dagsleg vitund okkar vill einfaldlega taka á sig þetta form. Við þennan almenna „athyglisbrest" bætist svo annar og lúmskari vandi. Hann varðar það hvers konar athygli við veitum hlutunum. Þessu til skýringar má nefna smásögu Jacks London „To Build a Fire“. Söguhetjan í þessari smásögu er ein á göngu einhversstaðar lengst inni í auðnum Norður-Alaska í nístandi vetrarkulda. Náttúran er í senn ægifogur og háskalega köld, en hvorugt hefur á hinn bóginn hina minnstu þýð- ingu fyrir sögupersónu okkar: [...] allt þetta - hinn dularfúlli, mjói og langi stígur, skammdegið, nístandi kuldinn og það hve undarlegt og annarlegt þetta allt var - hafði engin áhrif á manninn. Ástæðan var ekki sú að hann væri löngu orðinn vanur því. Hann var aðkomumaður í landinu [...] og þetta var fyrsti veturinn hans. Það sem háði honum var að hann hafði ekkert hugarflug. Hann var vökull og næmur á staðreyndir h'fsins, en aðeins á staðreyndirnar, ekki á merkingu þeirra. Fimmtíu gráður undir frostmarki þýddi rúmlega áttatíu gráðu frostkælingu. Honum virtist sú staðreynd köld og óþægileg, það var allt og sumt. Hún fékk hann ekki til að hugleiða viðkvæmni sína sem vera háð hita, og viðkvæmni mannsins almennt, sem einungis getur lifað innan þröngra marka hita og kulda; og það leiddi hann ekki heldur inn á svið getgátna um ódauðleika og íhugunar um stöðu mannsins í alheiminum. Fmmtíu gráðu frost táknaði nístandi kulda sem sveið undan og verður að verjast með því að nota vettlinga, húfú, ullarnærbuxur og þykka sokka. 29 Sbr. eftirfarandi orð Iris Murdoch: „Sálin er sögulega mótaður einstaklingur sem vægðarlaust lítur eftir sjálfum sér. Að sumu leyti líkist hún vél; til að ganga þarf hún eldsneyti, og hún hneigist fyrirfram til virkni af vissu tagi [...] Ein af hennar eftirlætis dægrastyttingum eru dagdraumar. Hún er treg til að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir [...] Hún sækist sífellt eftir huggun, annað hvort með því að milda upp sjálfið eða með skáldskap af guðfræðilegum toga. Jafnvel kærleikur hennar er oftar en ekki lcið til að sýna fram á eigið ágæti", „'lhe Sovereignty of Good Over Other Concepts“, í Existentialisis and Mystics, s. 364.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.