Hugur - 01.01.2008, Síða 86

Hugur - 01.01.2008, Síða 86
84 Stefán Snœvarr samfélagi til að skilja hugtök þess, menn verða m.ö.o. að hafa eins konar reynslu af samfélaginu. Sú rökgreining sem Winch ræðir um er greining hins daglega máls, ekki formleg (lífsíirrt?) greining stærðfræðilegrar rökfræði. En samfella málgreiningar, túlkunar og reynslu þátttakandans er einn af hornsteinum skiln- ingshagfræði minnar.'8 D) Donald Davidson dregur í efa að málbeiting hljóti að byggja á reglum og Alasdair Maclntyre að breytni manna geri það. Davidson segir að við getum án vandkvæða skilið ýmis konar mismæli, furðulega málbeitingu og alls kyns önnur frávik frá málvenjum og þar með reglum. Að skilja reglubeitingu er því ekki nauð- synleg forsenda málskilnings (Davidson 1986). En mér sýnist Davidson fara villur vegar. I fyrsta lagi skilja menn yfirleitt frávik frá reglum vegna þess að sá sem brýtur reglu A fylgir að jafnaði öðrum reglum B, C og D. Við skiljum reglurofið með svipuðum hætti og við getum giskað á hvernig pússlubiti sem vantar í pússlu- spil lítur út að því tilskildu að við höfum hina bitana. Ef það að brjóta reglu A er bitinn sem vantar þá eru B, C og D pússlubitarnir sem við höfiim. Því fleiri bita sem vantar, því fleiri reglur sem málbeitandi brýtur, þeim mun erfiðara er að skilja hann. 1 öðru lagi getum við ekki skilið reglu nema kunna að brjóta hana. Því eru talsverðar líkur á að við skiljum reglurof vegna þess að það líkist þeim gerðum reglurofs sem við nú þegar þekkjum eða þeim gerðum sem við getum gert okkur í hugarlund. Maclntyre heldur því fram að Winch tali eins og öll breytni líkist því að fara eftir reglum í leikjum. En það að reykja sígarettu eða fara í göngutúr er vart breytni stjórnað af reglum af því tagi, enda sé ekki hægt að misbeita þessum meintu reglum, segir MacIntyre.Til þess að fara eftir reglu verður að vera hægt að misbeita henni eða brjóta hana (Maclntyre 1973,21). Svar mitt við þessu er tvíþætt og fyrri þátturinn er í formi frásagnar: Breskur heimspekingur sem ég þekki fór eitt sinn í gönguferð um bæinn Manhattan í Kansas. Lögregla í bíl stöðvaði hann og spurði hvert hann væri að fara. Hann sagðist vera í göngutúr. Löggurnar spurðu aftur hvert förinni væri heitið. Það tók þá langan tíma að skilja að hann var ein- faldlega í heilsubótargöngu, en slíkt stunda menn víst ekki í Miðvestrinu ameríska. „Gönguferð (labbitúr)“ má skilgreina sem „ferð sem menn fara fótgangandi án þess að ætla sér að fara á ákveðinn stað“. Menn ganga til að ganga og/eða bæta heilsuna, slaka á o.s.frv. Reglurnar um labbitúr má brjóta til dæmis með því að taka skyndilega að skokka eða gefa göngunni það ákveðna markmið að fara á til- tekinn stað þar sem labbitúrnum lýkur. Hinn liður svars míns er sama eðlis og svarið við gagnrýni Davidsons: Sjálfsagt er til reglulaus breytni. En við getum aðeins hegðað okkur reglulaust og valið að brjóta reglur vegna þess að við förum að jafnaði eftir reglum. Reglulausa breytnin er pússlubitinn sem vantar. E) Davidson dregur í efa að hægt sé að greina skarplega milli tilefna og orsaka. Frumástæður (primary reasons) eru orsakir athafna. Ennfremur segir hann: 18 Athugið að cg nota ekki orðið „rökgreiningu“ þegar ég rek eigin kenningar. Menn skilja það orð einatt sem „logical analysis" og tengja við formlegar greiningar. Eins og kom fram í grein minni „Tilraun um tilfinningar" í Hug 2006 hef ég aðrar hugmyndir um greiningu en formhyggjusinnarnir. Ég ræði þessi mál aðeins betur í neðanmálsgrein 20.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.