Sagnir - 01.05.1991, Síða 81

Sagnir - 01.05.1991, Síða 81
Akantusmunstrið fannst kvistur sem talinn var hafa því hlutverki að gegna að koma í veg fyrir að viðkomandi gengi aftur. Sérstök dauðamunstur eru á flestum austur-asískum grafkcrum, sam- svarandi grísku skreytingunum. Niðurstaðan var því eðlilega sú að ekki væri neinn vafi á því að akant- usmunstrið í grískri graflist hefði haft táknræna merkingu.9 Þróun munstursins Fyrstu akantusskreytingarnar voru formrænnar gerðar, en ekki náttúr- legar eftirlíkingar. Fyrsti vísirinn, í áttina til nákvæmari eftirlíkingar, var í formi lítils blaðs sem teygði sig út úr vafningunum og líktist æ meira náttúmlegu fyrirmyndinni, varð fjaðurlaga og með þyrnóttum jöðrum. Slík þróun frá formrænni gerð til náttúrulegra eftirlíkinga er ekki óvanaleg þó að jafn oft sé þró- unin í gagnstæða átt.10 Þessi gríska munsturgerð átti eftir að ná ótrúlegum vinsældum víða um heim. Það var ekki hvað síst fyrir atbeina Rómverja sem hrifust mjög af akantusmunstrinu. Þeir tóku það upp á arma sína, þróuðu það áfram og komu fram með sérrómversk einkenni. Norsku tréskurðarmeistararnir sóttu raunverulega fyrirmynd sína til rómverskrar útfærslu á grísku akantus-skreytingunum. Hið sama má segja um íslenska skreytilist, hún sótti sína fyrirmynd til rómanska teinungsins með akantusblöðum sem barst hingað á 11. öld. Með akantuslaufinu og hinni taktfast gerðu jurtaröð hafði hin gríska skreytilist náð árangri sem ekki er gjörlegt að ofmeta. „Öll blaðagerð skreytilistar- innar sem ekki ber greinileg ein- kenni náttúrulegrar fyrirmynd- ar, er í raun afsprengi gamla gríska akantusblaðsins. Það sem ef til vill var einu sinni merki dauðans, varð að sjálfri lífslín- unni í evrópskri skreytilist.“n Fyrir barokk akantusinn hafði gríska skreytilistin samt enga beina þýðingu. Gríski akantusinn var Jalangurssteinninn frá því um 980 e Kr. Hér má sjáfyrstu vísa akantusmunstursins í norrœnni list. Meginatriði myndskreytingarinnar er „Kristsdýrið“ sem talið er eiga að tákna Jesú Krist. Jalangursstíllinn er eldri en Hringaríkisstíllinn, eitt af einkennum hans er dýrsmynd sem dregin er með tvöfóldum útlínum. svokallaður stöngulteinungur sem hafði meiri þýðingu fyrir endur- reisnina og einveldið en hið „franska lauf“ barokk tímabilsins. Rómverjar sköpuðu hinn blaðríka blaðteinung sem barokktíminn byggði á sína skreytilist. Róm- verjar bættu engum nýjum atriðum við grísku skreydlistina en þaul- unnu og auðguðu hana. Þeir voru mjög uppteknir af akantusmunstr- inu og gerðu það svo rómverkst að komi það fyrir í skreydlist eykur það líkurnar á að hluturinn tilheyri rómanska tímabilinu. Rómverjar höfðu lengi verið undir áhrifum frá grískri menn- ingu, sem dæmi má nefna list Etr- úra. Grískir lista- og handverks- menn höfðu einnig lengi verið fengnir til Rómar. Þegar svo Róm- verjar hertóku og fóru ránshendi um Grikkland fluttu þeir heim í miklum mæli gripi og gríska list- muni sem aftur hafði ómæld áhrif á rómverska menningu. Hjá Rómverjum tók akantus- munstrið miklum breytingum, t.d. varð akantusteinungurinn æ blað- ríkari, þar til stöngullinn hvarf alveg eða varð þakinn blöðum. Blöðin fóru að vefjast um stöngul- inn og fylgja stefnu hans. Stöngul- endarnir enda í hnöppum og SAGNIR 79
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.