Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Blaðsíða 25
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014 25
gUðrún V. stefánsdóttir, Kristín Björnsdóttir og ástríðUr stefánsdóttir
Gagna var aflað með viðtölum og þátttökuathugunum. Í þátttökuathugunum fer
rannsakandinn á vettvang og fylgist með þátttakendum í sínu daglega lífi og um-
hverfi sem í þessari rannsókn var á heimilum fólks (Creswell, 2008). Tilgangur þátt-
tökuathugana er almennt sá að öðlast betri skilning á lífi þátttakenda. Þær voru í þessu
tilviki sérstaklega mikilvægar því að um var að ræða fólk sem átti erfitt með að tjá sig
með orðum. Í þátttökuathugunum var meðal annars fylgst með því hvernig staðið var
að stuðningi við fólkið, með hvaða hætti starfsfólk nálgaðist viðkomandi og hvernig
tjáskipti fóru fram. Viðtöl voru tekin við þátttakendur í þeim tilgangi að fá þá til að
lýsa með eigin orðum reynslu sinni af sjálfræði í daglegu lífi (Kvale, 1996). Í viðtölun-
um voru þátttakendur meðal annars beðnir að lýsa reynslu sinni af ákvarðanatöku og
hvaða þýðingu það hefði fyrir þá að taka þátt í ákvörðunum um stærri og smærri at-
burði í lífi sínu. Þegar þess þótti þurfa voru tekin tvö eða fleiri viðtöl við þátttakendur
en viðtölin fóru fram á heimilum þeirra og tóku um 40–60 mínútur hvert. Viðtölin voru
hljóðrituð, afrituð og greind með þemagreiningu sem oft er kennd við fyrirbærafræði
og var leitað eftir endurteknum hugmyndum og athöfnum í frásögnum þátttakenda í
þeim tilgangi að skapa heilsteypta mynd af sjálfræði í lífi þeirra (Creswell, 2008).
Þátttakendur
Þátttakendur rannsóknarinnar voru 41 einstaklingur með þroskahömlun, valdir með
markvissu úrtaki út frá aldri og áhuga á þátttöku. Með markvissu úrtaki er leitað
til þeirra sem búa yfir þekkingu eða reynslu af því málefni eða fyrirbæri sem er til
skoðunar. Reynt var að velja sem fjölbreyttastan hóp hvað varðaði búsetu, menntun,
atvinnu og hjúskaparstöðu (sjá töflu) svo að fram kæmi hversu ólíkir einstaklingar
fylla þann hóp sem greindur er með þroskahömlun (Creswell, 2008). Leitast var við
að ná einnig til þeirra sem þurfa mikla aðstoð og stuðning og eiga í erfiðleikum með
að tjá óskir sínar með orðum, en fjórir þátttakendur voru í þeirri stöðu. Þátttakendur
voru alls 25 konur og 16 karlar, en auðveldara var að finna konur sem höfðu áhuga á
rannsókninni en karla. Sóst var eftir fólki á aldrinum 26–66 ára því að fólk telst vera
ungmenni til 25 ára aldurs, þó að sjálfræðisaldurinn sé 18 ár. Efri mörkin miðuðust
við eftirlaunaaldur, sem er 67 ár, og eru þátttakendur þar af leiðandi á því aldursbili
sem telst til fullorðinsára. Þátttakendur rannsóknarinnar bjuggu flestir á höfuðborgar-
svæðinu. Taflan sýnir yfirlit yfir þátttakendur rannsóknarinnar.