Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Page 30

Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Page 30
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 201430 má ég fá að ráða mínU eigin l ífi ? 20. aldar. Hún hafði lengi haft áhuga á að flytja í sjálfstæða búsetu eða eigin íbúð og sagði: „Ég hef sagt þeim að ég vilji flytja en ég kann ekkert að sækja um og mig vantar upplýsingar.“ Þetta dæmi sýnir glöggt að lagalegur réttur fatlaðs fólks til að velja sér búsetu, svo og ákvæði í mannréttindasáttmálum, dugar skammt ef viðkomandi fær ekki viðeigandi stuðning við að leita nauðsynlegra upplýsinga til að byggja á ákvarð- anir sínar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að togstreita geti skapast í fjöl- skyldum þegar kemur að því að taka eins afdrifaríka ákvörðun og að flytja að heiman. Dæmi voru um að þátttakendur hefðu flutt að heiman án þess að vera tilbúnir til þess. Í þeim tilvikum höfðu tækifæri skapast eða aðstæður breyst, til dæmis höfðu veikindi foreldra orðið til þess að fólkið flutti að heiman, jafnvel gegn vilja sínum. Einnig voru dæmi um að þátttakendur væru tilbúnir að flytja að heiman en fjölskyldan væri á móti því. Hrafnkell var þrítugur og bjó með móður sinni: „Ég vil nú eiginlega flytja að heiman og búa einn en mamma segir að ég geti það ekki út af fötluninni sem ég er með.“ Þegar Katrín og kærasti hennar, nú eiginmaður, ætluðu að flytja að heiman mættu þeim neikvæð viðhorf frá systur Katrínar. Þar sem bæði voru í vinnu og þurftu enga utanaðkomandi aðstoð við heimilishald ákváðu þau að kaupa sér íbúð. Kröftug mótmæli systurinnar komu þeim í opna skjöldu en hún hafði hvorki trú á sambandi þeirra né möguleikum þeirra á að fjárfesta í húsnæði og vildi að Katrín flytti í sambýli eða í Hátúnsblokkirnar. Katrín reiddist og sagði: „Er þetta mitt líf eða þitt líf? Má ég fá að ráða mínu eigin lífi? … Já, ég flyt sko ekki í Hátúnsblokkirnar.“ Hún þurfti að sækja sér stuðning utan fjölskyldunnar og með þrautseigju og áræðni fékk hún vilja sín- um framgengt. Katrín hafði verið virk í hagsmunabaráttu fatlaðs fólks og þekkti rétt sinn og hafði þor til þess að mótmæla systur sinni. Nú, fimmtán árum seinna og eftir margra ára farsælt hjónaband, búa þau enn í sinni eigin íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Í þremur tilvikum kom fram að þátttakendur hefðu flust milli bæjarfélaga, og jafn- vel langan veg, gegn vilja sínum en svo virðist sem þeim hafi ekki staðið neitt annað til boða. Helga var ein þeirra, rúmlega þrítug, og var mjög ósátt við þessa ráðstöfun. Hún bjó áður sjálfstætt með stuðningi á höfuðborgarsvæðinu en móðir hennar taldi hana öruggari í sambýli á landsbyggðinni. Helga fékk ekki að ráða því sem hún gat ráðið, hún upplifði valdaleysi og kúgun af hálfu fjölskyldu sinnar og fékk ekki tæki- færi til að styrkja hæfni sína til að taka ákvarðanir. Helga upplifði sambýlið ekki sem sitt eigið heimili, fannst fjarlægðin frá höfuðborginni einangra sig, og saknaði fjöl- skyldu og vina. Hún þekkti aftur á móti ekki rétt sinn á frelsi til búsetu. Ástæða þess að lagalegur réttur virðist oft ekki vera gerður fólki með þroskahömlun ljós kann að vera sú að gerhæfi þess og þar með hæfni þess til að hafa forræði í eigin málum er ekki virt. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (2007) kveður á um að styðja skuli einstaklinginn til að taka ákvörðun um eigin mál fremur en að taka af honum þann rétt (12. gr.). Eitt af því sem hefur áhrif á frelsi fólks með þroskahömlun til að ákveða búsetu sína og taka stjórnina af fjölskyldu og þjónustukerfi er fjárhagur þess, en margt af því getur ekki staðið undir fjárhagslegum skuldbindingum varðandi íbúðakaup eða leigu á frjálsum markaði. Þátttakendum rannsóknarinnar var tíðrætt um fjármál sín, en að- eins þrettán þátttakendur höfðu full yfirráð yfir fjármálum sínum og algengt var að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.