Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Qupperneq 46
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 201446
lífsgæði 8–17 ára getUmiKilla Barna með einhVerfU
1. Hvert er mat getumikilla barna með einhverfu á lífsgæðum sínum?
2. Hvernig meta foreldrar getumikilla barna með einhverfu lífsgæði barna sinna?
3. Er munur á mati getumikilla barna með einhverfu og foreldra þeirra?
4. Eru lífsgæði getumikilla barna með einhverfu frábrugðin lífsgæðum jafnaldra í
samanburðarhópi?
AÐfErÐ
Þátttakendur
Í rannsóknarhópi voru 8–17 ára getumikil börn með einhverfu og foreldrar þeirra.
Val hópsins miðast við skilgreiningu greiningar- og flokkunarkerfisins ICD-10. Með
einhverfuhugtakinu er átt við einhverfu, ódæmigerða einhverfu, Aspergerheilkenni
og aðrar raskanir á einhverfurófi. Krafa var gerð um að börnin væru getumikil og
var ákveðið að miða við greindartölu 80 eða hærri til að auka líkurnar á að börn-
in gætu svarað lífsgæðamatslistanum án aðstoðar. Við val á aldursbili var stöðlun
KIDSCREEN-matslistans höfð til hliðsjónar (KIDSCREEN Group Europe, 2006). Sam-
kvæmt skrám Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins uppfylltu 303 börn þessi valvið-
mið og var þeim öllum boðin þátttaka, ásamt foreldrum þeirra. Í samanburðarhóp var
dregið parað slembiúrtak úr þjóðskrá og fengu alls 1.199 börn og foreldrar þeirra boð
um að taka þátt í rannsókninni. Börnin voru pöruð við rannsóknarhópinn með tilliti
til kyns, búsetu, fæðingarárs og -mánaðar.
Alls bárust gildir matslistar frá 109 börnum í rannsóknarhópi og var svarhlutfall
meðal þeirra því 35%. Svör bárust frá fleiri foreldrum en börnum eða 129 gildir mats-
listar. Svarhlutfall meðal foreldra var því 42,6%. Í samanburðarhópi tók þátt 251 barn
(20,9% svarhlutfall) og 286 foreldrar (23,9% svarhlutfall). Í töflum 1 og 2 eru upplýs-
ingar um bakgrunn þátttakenda.
Tafla 1. Bakgrunnsupplýsingar um börn í rannsóknar- og samanburðarhópi
Rannsóknarhópur Samanburðarhópur
Fjöldi* (%) Fjöldi* (%)
Kyn barns
Drengir 96 (88,1) 208 (82,9)
Stúlkur 13 (11,9) 43 (17,1)
Aldur barns
8–11 ára 49 (45,0) 106 (42,2)
12–17 ára 60 (55,0) 145 (57,8)
Búseta
Á höfuðborgarsvæðinu 66 (60,6) 154 (61,4)
Annað þéttbýli (með yfir 4000 íbúa) 24 (22,0) 58 (23,1)
Dreifbýli 19 (17,4) 39 (15,5)
Skólakerfi
Nám í almennum bekk 99 (90,8) 246 (98,0)
Nám í sérdeild eða öðru sérúrræði 10 (9,2) 5 (2,0)
* Samanlagður fjöldi þátttakenda getur verið mismunandi vegna ósvaraðra spurninga