Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Síða 112

Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Síða 112
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014112 innsÝn í einhVerfU kaflinn fjallar um Þróun vistunarúrræða og skólaþjónustu fyrir fötluð börn almennt og þar er rakið hvernig áherslur í þeim málaflokki hafa breyst á undanförnum áratugum. Þessi kafli er fróðlegur en mjög knappur; til dæmis er ekki fjallað um háskólanám sem nemendum með einhverfu eða önnur þroskafrávik stendur nú til boða í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í fjórða kaflanum um sögu einhverfu, Breytingar á algengi, er sagt frá því hversu gríðar- lega algengari einhverfa hefur orðið undanfarna áratugi, bæði hérlendis og erlendis – og að ekkert lát virðist þar á. Annar hluti bókarinnar, Að bera kennsl á einhverfu, fjallar um það ferli að greina rösk- un á einhverfurófinu og hvaða þýðingu það hefur fyrir einstakling og fjölskyldu hans. Kaflarnir eru tveir, Sigríður Lóa Jónsdóttir sálfræðingur skrifar þann fyrri, Frá grun til greiningar, og Svandís Ása Sigurjónsdóttir, sálfræðingur og skorarstjóri á fagsviði yngri barna á Greiningarstöðinni, þann síðari, Greining. Fyrri kaflinn fjallar um fyrstu einkennin sem foreldrar verða yfirleitt varir við og lýsa sér í seinkun á málþroska eða frávikum í félagslegum samskiptum. Sérlega áhrifarík er tilvitnun í orð móður sem lýsir fyrstu áhyggjum sínum af þroska barns síns. Frásögnin er mikilvæg áminning fyrir fagfólk um að hlusta vel og bregðast ávallt við áhyggjum foreldra af þroska barna sinna. Ræddar eru leiðir til að flýta ferlinu frá áhyggjum til greiningar til að fleiri börn geti fengið snemmtæka íhlutun og foreldrarnir viðeigandi stuðning og ráðgjöf. Svandís gefur yfirlit yfir það ferli við að greina einhverfu sem þykir best hérlendis og í nágrannalöndum, það er með þverfaglegri nálgun sem felur í sér að notuð eru ítarleg viðtöl, matskvarðar og beinar athuganir á hegðun. Kaflanum lýkur með brýningu um að einstaklingar með einhverfu geti haft mjög ólíkar þarfir þó að þeir séu með sömu greiningu og því sé mikilvægt að kynnast hverjum og einum vel. Þriðji hluti bókarinnar, fjórir kaflar, fjallar um Orsakir, taugafræði og meðraskanir. Í fyrsta kaflanum, Erfðir og áhættuþættir, skýrir Ingólfur Einarsson, barnalæknir og sviðstjóri á fagsviði langtímaeftirfylgdar á Greiningarstöðinni, frá þeim þáttum sem taldir eru auka líkur á einhverfu. Ljóst þykir að erfðir eigi stóran þátt í þróun ein- hverfu þar sem líkurnar á einhverfu aukast eftir því sem skyldleiki við einstakling með einhverfu er meiri. Þannig hefur samsvörun meðal eineggja tvíbura reynst mjög mikil – þó ekki 100% þannig að fleiri þættir virðast vera þarna að verki. Annar kafl- inn nefnist Taugafræðilegt sjónarhorn. Þar lýsir Ingólfur tengslum heilastarfsemi og tiltekinna hegðunareinkenna einhverfu. Komið hefur í ljós að heili einstaklinga með einhverfu er að ýmsu leyti frábrugðinn heila sem þroskast eðlilega en að markviss íhlutun geti styrkt og aukið sveigjanleika tauganetsins. Í þriðja kaflanum, Meðraskanir, lýsa Ingibjörg Bjarnadóttir barnataugalæknir, Evald Sæmundsen og Brynja Jónsdótt- ir talmeinafræðingur erfiðleikum sem oft fylgja einhverfu og geta jafnvel haft meiri hamlandi áhrif en einhverfueinkennin sjálf. Algengar meðraskanir einhverfu eru þroskahömlun, athyglisbrestur með ofvirkni, kvíðaraskanir og svefnraskanir. Einkum eru það skertur vitsmunaþroski og geðraskanir sem geta haft hvað neikvæðust áhrif á framtíðarhorfur barna með einhverfu. Í lokakafla þessa hluta, Lyfjameðferð, segja L. Ýr Sigurðardóttir barnalæknir og Ingibjörg Bjarnadóttir frá meðferð með lyfjum. Engin lyf eru til við einhverfu, en lýst er hvernig hægt er að hafa áhrif á afmörkuð einkenni eða einkenni meðraskana með ýmiss konar lyfjum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.